fbpx
Sunnudagur 15.mars 2026
Fréttir

Hafnarfjarðarmálið: Helgi lýsir yfir sakleysi – „Þetta er martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 12. janúar 2026 08:40

Helgi Bjartur Þorvarðarson. Mynd: Félag fasteignasala

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Bjartur Þorvarðarson, sem ákærður er fyrir húsbrot og kynferðisbrot gegn 10 ára dreng í Hafnarfirði, segist saklaus af ákæru í málinu og segir hana ekki vera í samræmi við málsgögn. Hann segist umrætt kvöld hafa fallið á bindindi sínu og lent í blackout-ástandi. Hann hafi ekki verið með sjálfum sér en hann hafi það samt ekki í sér að vera fær um að fremja slíkt afbrot sem lýst er í ákærunni. Sé hann því saklaus.

Helgi hefur sent eftirfarandi yfirlýsingu til fjölmiðla um málið:

„Ég hef lengi velt því fyrir mér hvort ég eigi yfir höfuð að stíga fram með einhver orð í þessu máli. Ég geri það nú af þeirri einföldu ástæðu að þögn mín hefur skapað rými fyrir þá ályktun að ég hafi vísvitandi framið ólýsanlegt brot gegn barni.

Umrætt kvöld féll ég á bindindi mínu og var um nóttina kominn í svokallað  blackout-ástand og virðist ekki hafa verið með sjálfum mér enda fannst ég sofandi áfengisdauða í vaskahúsinu heima hjá mér án þess að muna hvernig ég komst þangað.

Þó að ég hafi verið í þessu ástandi þá hef ég það einfaldlega ekki í mér að vera fær um að gera það sem ég er sakaður um og er saklaus af þeirri ákæru. Þá er ákæran sjálf í miklu ósamræmi við gögn málsins að mínu mati. Það breytir þó engu um þá staðreynd að afleiðingarnar eru raunverulegar, alvarlegar og skelfilegar.

Ég vil taka það skýrt fram að ég fordæmi allt kynferðisofbeldi gegn börnum og hef aldrei haft slíkar hvatir eða hugsanir. Það sem ég er sakaður um að hafa gert er mér sjálfum óskiljanlegt og hefur sett líf mitt og fjölskyldu minnar í rúst. Það eina sem ég veit er að í því húsi sem sagt er að ég hafi farið inn í þessa nótt býr kona sem ég taldi á þessum tímapunkti bestu vinkonu mína. Ég skil að orð mín breyta ekki þeirri upplifun og þeim ótta sem barn og fjölskylda þess bera. Ég finn til með barninu og fjölskyldu þess vegna þess ótta og sársauka sem þau upplifa í dag.

Ég mun aldrei geta afturkallað það að hafa fallið á bindindi mínu, en tek aftur fram að ég er ekki sekur um það sem ég er ákærður fyrir. 

Ég hef frá fyrsta degi verið í samstarfi við yfirvöld og mun halda því áfram. Ég hef jafnframt leitað sérfræðiaðstoðar og er í meðferð til að tryggja að slíkt bakslag endurtaki sig ekki.

Ég skil að þetta mál vekur sterk viðbrögð. Ég bið þó um að málsmeðferð fái að fara sinn lögbundna farveg og að dómur verði ekki kveðinn upp í fjölmiðlum.

Þetta er martröð sem ég mun bera með mér alla ævi. Það eina sem ég get gert er að axla ábyrgð á falli mínu og sýna iðrun í verki.“

 Sjá einnig: Helgi keypti þjónustu vændiskonu sama kvöld – Síminn hans hefur ekki fundist

Lögmaður Helga, Oddgeir Einarsson hæstaréttarlögmaður, vill koma eftirfarandi á framfæri um málið:

„Ég er verjandi manns sem sakaður hefur verið um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði síðastliðið haust.

Þrátt fyrir mikla fjölmiðlaumfjöllun um þetta viðkvæma mál, meðal annars fyrir tilstilli lögreglu og saksóknara, sem hófst löngu áður en dómstólar svo mikið sem byrjuðu að skoða málið hefur skjólstæðingur minn ekki viljað lýsa sinni afstöðu opinberlega hingað til. Það er þó þannig að í allri þeirri umfjöllun hefur algjörlega verið skautað hjá mikilvægum sjónarmiðum sem benda til sakleysis í málinu auk þess að þar eru atriði sem beinlínis eru ekki sannleikanum samkvæm.

Vegna nafn- og myndbirtinga í kjölfar þess að héraðsdómur hafnaði á föstudag kröfu saksóknara um gæsluvarðhald sér skjólstæðingur minn sig knúinn til að upplýsa að hann telji ákæru þá sem hann sætir í málinu í miklu ósamræmi við gögn málsins og að hann sé saklaus af ákæru um að hafa brotið kynferðislega gegn barni.

Úr þessu verður einfaldlega leyst fyrir dómi þar sem öll gögn málsins og sjónarmið beggja aðila, en ekki einungis ákæruvaldsins, koma til skoðunar.  Þrátt fyrir einhliða umfjöllun um málið undanfarna mánuði sem skjólstæðingur minn hefur ekki viljað blanda sér í treystir hann því að dómstólar fjalli um málið af hlutlægni og á óhlutdrægan hátt. Loks er rétt að minna á að sú grundvallarregla réttarríkisins gildir enn að sakborningur skal álitinn saklaus uns sekt er sönnuð.“

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þjóðhátíðargestir lentu í vanda eftir misvísandi skilaboð frá lögreglu

Þjóðhátíðargestir lentu í vanda eftir misvísandi skilaboð frá lögreglu
Fréttir
Í gær

Einstæð móðir og sjúkraliði gagnrýnir Kópavogsleiðina – „Ekkert nema sýndarmennska og fyrirsláttur“

Einstæð móðir og sjúkraliði gagnrýnir Kópavogsleiðina – „Ekkert nema sýndarmennska og fyrirsláttur“
Fréttir
Í gær

Ertu nokkuð að gleyma þér? – Síðasti dagurinn til skila er í dag

Ertu nokkuð að gleyma þér? – Síðasti dagurinn til skila er í dag
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Arnar vill ekki þurfa fjölskylduna inn á klósett til sín – Sendir Ölmu Möller opið bréf vegna málsins

Arnar vill ekki þurfa fjölskylduna inn á klósett til sín – Sendir Ölmu Möller opið bréf vegna málsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Færð bara yfir þig dembuna“

„Færð bara yfir þig dembuna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn