fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Á bráðamóttöku eftir meint ofbeldi dyravarða á Auto – „Hann bara ældi og gat varla labbað eða talað“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 22. desember 2025 12:30

Frá Auto. Mynd: Instagram.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður um þrítugt var fluttur á bráðamóttökuna í Fossvogi á laugardagsnótt eftir átök við dyraverði á næturklúbbnum Auto við Lækjargötu. „Þetta var algjörlega tilefnislaus árás dyravarðanna, þeir héldu að hann hefði kastað einhverri flösku eða eitthvað, sem hann gerði ekki,“ segir heimildarmaður DV.

Viðkomandi lýsir því að maðurinn hafi þvínæst verið umkringdur nokkrum Albönum, honum virtust þeir um sex talsins, og hafi þolandinn verið barinn illa. „Þeir gjörsamlega lúberja hann þangað til hann getur ekki staðið í lappirnar, hann bara ældi og gat ekki talað, hann fékk líka höfuðáverka,“ segir viðkomandi enn fremur.

Samkvæmt heimildum nýtir Auto sér þjónustu hjá albönsku dyravarðarfyrirtæki, eins og fleiri skemmtistaðir í miðborginni.

Heimildarmaðurinn segir að lögregla hafi komið á staðinn og maðurinn hafi verið fluttur á bráðamóttöku. Hann hafi verið mjög illa farinn en hafi þó sofið heima hjá sér, hann hafi verið sendur heim með verkjalyf. Hann hyggst leggja fram kæru í málinu og er hann búinn að óska eftir tíma hjá kærumóttöku lögreglunnar.

Lögregla staðfestir frásögnina

Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við DV að atvikið hafi átt sér stað. „Þetta gerðist aðfaranótt laugardagsins 20. desember. Það er einn árásarþoli þarna sem sagðist hafa orðið fyrir áverkum vegna afskipta dyravarða. Hann var síðan fluttur á sjúkrahús með áverka.“

Aðspurður segir Unnar að enginn hafi verið handtekinn vegna málsins, en: „Málið er bara í rannsókn hjá okkur og það er beðið eftir kæru.“

Ekki náðist samband við forsvarsmenn Auto við vinnslu fréttarinnar en greint verður frá viðbrögðum þeirra síðar ef þau berast.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“