fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Þóttist vera flugþjónn og sveik út 120 flugferðir – Gæti átt þungan dóm yfir höfði sér

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 12. júní 2025 21:30

Þessi flugþjónn er blásaklaus. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður frá Flórída sem þóttist vera flugþjónn náði að svíkja út 120 flugferðir. Hann gæti hins vegar átt yfir höfði sér 30 ára fangelsisdóm.

Tímaritið People greinir frá þessu.

Umræddur maður heitir Tiron Alexander og er 35 ára gamall. Hann hefur verið sakfelldur af dómstól í Flórída fyrir að svíkja flugferðir út úr flugfélögum með því að þykjast vera flugþjónn sem og að fara í óleyfi inn á öryggissvæði flugvalla.

Eins og segir í ákæruskjali saksóknarans í héraðinu Suður Flórída komst Alexander um borð í vélar og þóttist vera flugþjónn á vegum annars flugfélags. En flugfélög veita hvort öðru þá þjónustu að ferja áhafnir á milli svo lengi sem starfsmennirnir tilgreina flugfélagið sem þeir vinna hjá, ráðningardag og starfsmannanúmer.

Á sex ára tímabili, árin 2018 til 2024, flaug Alexander 120 sinnum og laug til um atvinnu sína. Hann hafði tilgreint alls sjö flugfélög sem atvinnuveitanda og hafði skráð 30 mismunandi starfsmannanúmer.

Alexander var fundinn sekur fyrir viku síðan, þann 5. júní, og gæti átt allt að 20 ára fangelsisvist yfir höfði sér. Það er 20 ár fyrir fjársvik og 10 fyrir að fara inn á öryggissvæði í leyfisleysi. Refsing verður ákveðin þann 25. ágúst næstkomandi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður