fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 5. júní 2025 11:42

Hinn byltingarkenndi eActros 600.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landfari, umboðsaðili Mercedes-Benz vöru- og hópferðabíla á Íslandi, mun opna nýtt þjónustuverkstæði að Álfhellu 15 í Hafnarfirði á laugardag. Á sama tíma verður nýr og byltingarkenndur rafmagnsvörubíll eActros 600 frumsýndur.

Í tilefni tímamótanna mun Landfari halda sérstaka opnunarhátíð á nýja staðnum á laugardag frá kl. 11-15. Gestir fá einstakt tækifæri til að sjá nútímalegt þjónustuverkstæði og skoða nýjustu atvinnubílana frá Mercedes-Benz og Setra þar á meðal hinn nýja eActros 600, eins og segir í tilkynningu. 

Viðburðurinn markar tímamót fyrir Landfara sem hefur eflt þjónustu við atvinnubílaeigendur með opnun nýs verkstæðis sem er útbúið til að mæta kröfum nútímans bæði fyrir hefðbundna díselbíla og rafmagnsbíla.

„Við erum sérstaklega spennt að kynna eActros 600, öflugasta fjöldaframleidda rafmagnsvörubílinn í heiminum í dag,“ segir Eiríkur Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Landfara. „Hann er ekki bara vistvænn, líka mjög öflugur, með drægni allt að 500 km á einni hleðslu í fulllestaður.“

Þjónusta sem fullnægir þörfum nútímans

Nýja þjónustuverkstæðið að Álfhellu 15 er hannað með hliðsjón af auknum kröfum í þjónustu og tækniþróun. Þar verður boðið upp á smurþjónustu fyrir allar gerðir atvinnubíla, viðgerðir, rúðuviðgerðir og rúðuskipti fyrir alla atvinnubíla, viðgerðir og þjónustu við eftirvagna og bilanagreiningar og viðhald fyrir vöru- og hópferðabíla frá Mercedes-Benz og Setra.

„Við viljum bjóða eigendum atvinnubíla fyrsta flokks þjónustu og það krefst aðstöðu og tækni sem stenst ítrustu kröfur. Landfari rekur nú þjónustuverkstæði á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu, auk Álfhellu er þjónustuverkstæði og söludeild að Desjamýri 10 í Mosfellsbæ, og vagnaverkstæði í Klettagörðum 4, sem mun flytja í Klettagarða 5 á næstu vikum,“ segir Eiríkur.

Á sýningarsvæðinu verður til sýnis fjölbreytt flóra af vöru- og hópferðabílum frá Mercedes-Benz, þar á meðal eActros 600, Actros ProCabin og Arocs ásamt Sprinter, Vito og Actros sendibílum. Þá verða einnig Setra hópferðabílar sýndir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“