fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Heimsendingar í póstbox ef ekki tekst að afhenda

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 20. febrúar 2024 16:33

Nú fara allir pakkar í póstbox sem ekki hefur tekist að afhenda í heimsendingu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú fara allir pakkar í póstbox sem ekki hefur tekist að afhenda í heimsendingu. Áður fóru þessir pakkar á pósthúsið en með þessari breytingu geta viðskiptavinir Póstsins sótt pakkann sinn hvenær sem er.

,,Við réðumst í smá tilraunaverkefni í hittifyrra og það er gaman að segja frá því að verkefnið heppnaðist svo vel að ákveðið var að breyta þjónustunni í kjölfarið,“ segir Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir, sérfræðingur í upplifun viðskiptavina hjá Póstinum í fréttatilkynningu.

Þó að póstboxin séu orðin 90 talsins víðsvegar um landið, kemur fyrir að þau fyllast en það er í undantekningartilvikum, til dæmis í kringum netsöludagana í nóvember. „Við afhendum samdægurs á höfuðborgarsvæðinu því um leið og pakkinn kemur til okkar frá netversluninni er farið með hann í póstbox ef sá afhendingarmáti er valinn,“ bætir Alexandra við.

Hún segir að á álagstíma árið 2022 hafi verið brugðið á það ráð að spyrja þá viðskiptavini, sem áttu pakka á leið í póstbox sem þegar var orðið fullt, hvort þeir vildu flýta fyrir afhendingunni með því að fá þá senda á pósthús eða í heimkeyrslu. ,,Það kom okkur á óvart að um 64% völdu að bíða þar til pláss losnaði í póstboxinu. Þetta tókst stórvel og við ákváðum að fara sömu leið núna í nóvember. Viðskiptavinum okkar finnst póstboxin greinilega þægilegur afhendingarmáti.“ 

Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir, sérfræðingur í upplifun viðskiptavina hjá Póstinum.

Beint í póstbox

Alexandra segir að þar sem þetta hafi gefið góða raun hafi verið ákveðið að breyta því fyrirkomulagi sem hefur verið haft þegar ekki tekst að afhenda pakka í heimsendingu. ,,Lengi vel hafa þessir pakkar lent á pósthúsi. Framvegis munu þeir hins vegar fara beint í póstbox, ef ekki tókst að afhenda sendinguna í útkeyrslu, og hægt verður að nálgast þær sama dag því póstboxin eru alltaf opin. Þetta er gott dæmi um það hvernig þjónustunni hefur fleygt fram í takt við óskir viðskiptavina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“