fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Akureyringur var með skelfilegt barnaníðsefni í fórum sínum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 20. febrúar 2024 11:00

Frá Akureyri. Mynd: Auðunn. Mynd tengist frétt ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sakfellt akureyskan mann fyrir vörslu á barnaníðsefni. Á heimili mannsins fundust tveir DVD diskar með skelfilegu innihaldi. Í texta dómsins er því lýst svo:

Diskur 1. Munanúmer […]: Á disknum voru tvö mynskeið með efni sem lýst er hér á eftir:

„Myndskeið af 12 til 16 ára stúlkum sem verið er að nauðga af karlmanni. Lengd 13 mín og 1 sekúnda.

Myndskeið af 12 til 14 ára stúlkum sem verið er að nauðga af karlmanni. Lengd 48 mínútur og 26 sekúndur.

Diskur 2. Munanúmer […]. Á disknum voru 11 myndskeið með efni sem innihélt barnaníðsefni. Heildarafspilunartími var 4 klukkustundir, 25 mínútur og 34 sekúndur.
Efnislega voru þetta myndskeið af 10 til 14 ára stúlkum að fróa sér fyrir framan myndavél, 10 til 14 ára stúlkum sem verið var að nauðga og 6 til 10 ára stúlkum sem
verið var að nauðga.“

Ekki kemur fram í dómnum hvað olli því að lögregla var á heimili mannsins og gat fundið þetta efni. Hins vegar kemur fram að maðurinn keypti mynddiskana á ferðalögum sínum erlendis.

Maðurinn játaði sekt sína skýlaust fyrir dómi. Við broti hans getur legið allt að sex ára fangelsi en hann var einungis dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Dóminn má lesa hér.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“