fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Hyggjast bjóða Grindvíkingum leigu- og hollvinasamninga á fyrri fasteignum þeirra

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 12. ágúst 2024 09:52

Mynd: Grindavíkurbær

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fasteignafélagið Þórkatla hyggst bjóða fyrrum eigendum húsnæðis í Grindavík upp á bæði leigusamninga og svokallaða hollvinasamninga, en forsenda þeirra er þó að öruggt sé talið að dvelja í Grindavík. Hollvinasamningur mun byggja á samstarfi Þórkötlu við seljendur eignanna um umhirðu, minniháttar viðhald og almennt eftirlit með eignunum. Ákvörðun um framkvæmd þessara samninga verður tekin um leið og aðstæður leyfa.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá fasteignafélaginu.

Langt komin með kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík

Í tilkynningunni kemur fram að Fasteignafélagið Þórkatla hefur gengið frá kaupum á 852 fasteignum í Grindavík eða 93% þeirra sem sótt hafa um. Afhendingar hafa gengið vel og hefur félagið þegar tekið við um 650 eignum. Unnið er að lokauppgjöri við seljendur og frágangi afsala. Félaginu hafa alls borist 917 umsóknir, auk 18 umsókna frá búseturéttarhöfum.

Heildarfjárfesting félagsins til þessa er rúmir 65 milljarðar króna. Þar ef eru kaupsamnings- og afsalsgreiðslur tæpir 45 ma. kr. og yfirtekin húsnæðislán rúmir 20 ma. Kr.

„Það er ánægjulegt að okkur hefur nú þegar tekist að koma rúmlega 850 fjölskyldum í Grindavík til hjálpar í þessum erfiðu aðstæðum. Fram undan er vissulega ákveðin biðstaða en við vonum að náttúruöflin verði okkur að lokum hliðholl svo huga megi að framtíð og uppbyggingu Grindavíkur fljótlega aftur.“ segir Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Fasteignafélagsins Þórkötlu.  

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“