fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Fréttir

Kristínu sárnaði þegar hún las Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins um síðustu helgi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 23. febrúar 2024 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín S. Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi, segir rangfærslur hafa birst í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins um síðustu helgi sem nauðsynlegt sé að leiðrétta.

Kristín vísar í skrif sem birtust á síðum 16 og 17 í sunnudagsblaðinu þar sem skrifað var um sofandahátt íslenskra stjórnvalda í flóttamannamálum. Þau hefðu jafnvel látið yfirstjórn og eftirlit í hendurnar á „stjórnsömu en í raun umboðslausu ákafafólki“ sem ætti ekki að koma nálægt svona viðkvæmum málum.

„Margur hefur orðið meira en hugsandi yfir framgöngu áður virtra samtaka, eins og Rauða krossins, sem á sér mikla sögu og lengi naut verðskuldaðrar virðingar, frá atbeina sínum á stríðssvæðum við hjálp og björgun á löskuðu fólki og særðu, sem hvergi átti höfði að halla. En hér heima virðast þessi samtök illa hafa breyst og hafa nú á sínum snærum fjölda lögfræðinga, á háum launum, við að þvælast fyrir og að gera stjórnvöldum landsins erfitt fyrir að stemma stigu við flóttamannaóreiðunni, sem komin er í fullkomnar ógöngur.“

Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag segir Kristín að þessi staðhæfing sem birtist hér að framan eigi ekki við rök að styðjast. Ekkert lögfræðingateymi sé hjá Rauða krossi Íslands.

„Rauði kross­inn á Íslandi rak tals­mannaþjón­ustu fyr­ir um­sækj­end­ur um alþjóðlega vernd á ár­un­um 2014-2022. Inn­an­rík­is­ráðuneytið, sem síðar varð dóms­málaráðuneytið, fól fé­lag­inu þetta verk­efni á sín­um tíma með samn­ingi um að sinna þessu hlut­verki. Fé­lagið réð til sín sér­fræðinga sem voru hæf­ir til að sinna störf­um í sam­ræmi við kröf­ur samn­ings­ins, þar með talda lög­fræðinga sem fengu greidd þau laun sem rúmuðust inn­an samn­ings,“ segir Kristín í grein sinni.

Hún bætir við að talsmenn um­sækj­enda um alþjóðlega vernd hafi það hlut­verk að gæta rétt­inda skjól­stæðinga sinna gagn­vart stjórn­völd­um og kveðið sé á um slíkt hlut­verk í alþjóðleg­um sátt­mál­um.

„Það var ákvörðun stjórn­valda að færa þessa þjón­ustu á einn stað en hafa hana ekki hjá sjálf­stætt starf­andi lög­mönn­um. Þessi ákvörðun var í senn tek­in til að draga úr kostnaði og bæta þjón­ustu,“ segir hún.

Kristín bendir svo á að í lok árs 2021 hafi ráðuneytið tekið þá ákvörðun að end­ur­nýja samn­ing­inn ekki og lagðist þjón­ust­an af á vor­mánuðum 2022.

„Á sama tíma luku lög­fræðing­arn­ir störf­um hjá Rauða kross­in­um og eng­inn lög­fræðing­ur starfar að mál­efn­um um­sækj­enda um alþjóðlega vernd eða flótta­fólks hjá fé­lag­inu í dag. Skrif Morg­un­blaðsins eru því til­hæfu­laus með öllu. Rauði kross­inn á Íslandi nýt­ur mik­ils traust og vel­vilja í sam­fé­lag­inu og hef­ur gert í 100 ár. Erfitt er að skilja hvers vegna Morg­un­blaðið kýs að beita ósann­ind­um til að reyna að sverta ímynd fé­lags­ins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

„Það eru íslenskir karlar sem fremja glæpina. Við vitum alveg hverjar staðreyndirnar eru“

„Það eru íslenskir karlar sem fremja glæpina. Við vitum alveg hverjar staðreyndirnar eru“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Þingkona og nágrannar hennar biðu ósigur gegn Reykjavíkurborg

Þingkona og nágrannar hennar biðu ósigur gegn Reykjavíkurborg
Fréttir
Í gær

Hvaða ráðherrar hafa staðið sig best og verst? Athyglisverðar niðurstöður úr könnun Maskínu

Hvaða ráðherrar hafa staðið sig best og verst? Athyglisverðar niðurstöður úr könnun Maskínu
Fréttir
Í gær

Frambjóðandi Viðreisnar bendir á lóðir til að leysa bílastæðamál miðbæjarins – Tvær þeirra tilheyra Laugardal

Frambjóðandi Viðreisnar bendir á lóðir til að leysa bílastæðamál miðbæjarins – Tvær þeirra tilheyra Laugardal
Fréttir
Í gær

Jón Steinar opnar sig um ásakanirnar – „Ég ber engan kala til barnanna sem tóku þátt í þessu máli gegn okkur“

Jón Steinar opnar sig um ásakanirnar – „Ég ber engan kala til barnanna sem tóku þátt í þessu máli gegn okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stólpagrín gert að J.D. Vance – „Á sögulegri siglingu“

Stólpagrín gert að J.D. Vance – „Á sögulegri siglingu“