fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Guðríður verður nýr framkvæmdastjóri Samáls

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 4. febrúar 2024 10:22

Guðríður Eldey Arnardóttir, verðandi framkvæmdastjóri Samáls

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðríður Eldey Arnardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samáls, Samtaka álframleiðanda á Íslandi, en hún tekur við starfinu af Pétri Blöndal sem hefur gengt starfinu frá árinu 2013.

Guðríður býr að fjölbreyttri starfsreynslu, bæði hjá hinu opinbera sem og á almennum markaði. Hún hefur meðal annars unnið við markaðsmál, fjölmiðla- og kynningarmál og sinnt kjarasamningagerð.

Guðríður kenndi raungreinar um árabil og hefur síðustu ár verið skólameistari Menntaskólans í Kópavogi. Guðríður er með B.S gráðu í jarðfræði og diplómu í kennslufræði, viðskiptafræði og opinberri stjórnsýslu.

Mark­mið Samáls er að vinna að framþróun ís­lensks áliðnaðar, efla upp­lýs­inga­streymi og fræðslu um áliðnaðinn. Aðild að Sa­máli eiga all­ir ís­lensk­ir álfram­leiðend­ur, Rio Tinto á Íslandi, Alcoa Fjarðaál og Norðurál.

Starfssvið Guðríðar verður með áherslu á framþróun umhverfismála, öryggis- og heilbrigðismála og hún mun beita sér fyrir framþróun menntamála í áliðnaði. Hún mun auk þess sinna upplýsingagjöf til almennings og samskiptum við hagaðila, yfirvöld og fjölmiðla.

„Ég hlakka til að hefja störf á nýjum og spennandi vettvangi. Ál hefur svo marga kosti, meðal annars er álið létt og endurvinnsluhlutfall þess er hátt. Álframleiðsla hér á landi er mikilvægt framlag til umhverfis – og loftlagsmála á heimsvísu, hér er framleiðsla áls eins umhverfisvæn og tækni dagsins í dag býður upp á, raforka til framleiðslunnar kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum og stöðugt hefur dregið úr kolefnislosun vegna framleiðslunnar sjálfrar “ segir verðandi framkvæmdastjóri Samáls, Guðríður Eldey Arnardóttir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“