fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Fréttir

Allt annað en sáttur við framkvæmdirnar: „Greinilega ákvörðun sem er tekin við skrifborð“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. október 2023 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, er allt annað en sáttur við umfangsmiklar framkvæmdir sem nú standa yfir á gatnamótum Sæbrautar og Keppsmýrarvegar/Skeiðarvogs.

Um er að ræða breytingar sem miða að auknu umferðaröryggi og fela í sér að önnur af tveimur beygjuakreinum til vinstri frá Kleppsmýrarvegi til suðurs inn á Sæbraut er felld niður. Miklar umferðartafir eru á þessu svæði á álagstímum og þá fara þungir vöruflutningar frá stórum fyrirtækjum þarna um. Umferðartafirnar hafa síður en svo batnað síðan framkvæmdir hófust.

Morgunblaðið ræðir við Guðmund í dag en steinsnar frá framkvæmdasvæðinu stendur fyrsta Bónusverslunin sem opnuð var í Skútuvogi.

„Okkur finnst þetta galið. Þetta er greinilega ákvörðun sem er tekin við skrifborð, alveg ótengd því hver raunveruleikinn er,“ segir Guðmundur og bætir við að þetta sé hryllingur.

„Nú þegar aðeins er ein akrein sem beygja má á til vinstri inn á Sæbraut tekur það orðið 4-6 umferðarljós að komast þarna í gegn. Ég gæti trúað því að biðtíminn sé orðinn tvöfalt lengri en áður var. Og var hann nú slæmur fyrir,“ segir Guðmundur við Morgunblaðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Sviðin jörð gjaldþrotakóngs í Garðabæ – „Hann er ekki einu sinni búinn að klára húsið okkar“

Sviðin jörð gjaldþrotakóngs í Garðabæ – „Hann er ekki einu sinni búinn að klára húsið okkar“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Stöð 2 veldur Helgu vonbrigðum

Stöð 2 veldur Helgu vonbrigðum
Fréttir
Í gær

Vara við nýrri tegund netsvika – Töpuðu töluverðum fjárhæðum í ógáti

Vara við nýrri tegund netsvika – Töpuðu töluverðum fjárhæðum í ógáti
Fréttir
Í gær

Stuðningsmenn Njarðvíkur sagðir hafa brotið fjölda sæta á heimavelli Vals – „Íþróttir kalla fram tilfinningar í fólki“

Stuðningsmenn Njarðvíkur sagðir hafa brotið fjölda sæta á heimavelli Vals – „Íþróttir kalla fram tilfinningar í fólki“
Fréttir
Í gær

Styttist í beint flug til Kína: „Líklegustu borgirnar eru Shanghai eða Peking til að byrja með“

Styttist í beint flug til Kína: „Líklegustu borgirnar eru Shanghai eða Peking til að byrja með“
Fréttir
Í gær

Atvik sem fór framhjá flestum í gær – Trompaðist gjörsamlega þegar hann var tekinn af velli

Atvik sem fór framhjá flestum í gær – Trompaðist gjörsamlega þegar hann var tekinn af velli