fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fréttir

Samúel segir aðför að mannorði Arnar bróður síns hafa ýtt honum fram af brúninni

Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 15. apríl 2023 19:22

Bræðurnir Arnar og Samúel sem börn / Stefán Arnar Gunnarsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Addi er fundinn. Það fer að renna upp fyrir okkur að hann kemur aldrei aftur í heimsókn, hringir ekki framar, sendir ekki fleiri skilaboð. Engar skýjaborgir sem höfðu fundið sér fótfestu í huga okkar munu rætast. Það verða engir endurfundir, þetta er endanlegt. Eftir standa fjölskylda og vinir í sorg og söknuði,“ segir Samúel Ívar Árnason í færslu á Facebook þar sem hann minnist bróður síns, Stefáns Arnar Gunnarssonar. Stefán fannst látinn fyrir tveimur vikum, en hans hafði þá verið leitað í tæpan mánuð.

Sjá einnig: Stefán Arnar var sá sem fannst látinn í fjörunni við Fitjabraut

Samúel er starfandi þjálfari meistaraflokks kvenna hjá HK og hefur starfað við þjálfun og kennslu í Noregi og á Íslandi í yfir 30 ár. Í færslunni fer hann yfir atvik sem áttu sér stað í aðdraganda andlát bróður síns. Segist Samúel hafa undanfarnar vikur reynt að fá svör við því, með dyggri aðstoð góðra manna, hvers vegna saga bróður síns endaði svona.

„Umtal/sögur um hann hafa borist okkur til eyrna, illkvittinn orðrómur og atburðarrás sem standast ekki nánari skoðun. Það er tímabært að rétta það umtal. Þið sem hafið áhuga á að fá innsýn inn í atburðarrásina sem endaði með þessum harmleik getið lesið áfram,“ segir Samúel og segir um að ræða samantekt byggða alfarið á þeim upplýsingum sem þeim hefur tekist að safna saman og kallast: Foreldraofbeldi í íþróttum og vanhæfni viðbragðsaðila.

Sjá einnig: Lögreglan lýsir eftir Stefáni Arnari

Foreldrar hafa mikil áhrif á störf íþróttafélaga

Samúel segir að eftir því sem árin hafa liðið og tíðarandinn breyst komi sífellt skýrar í ljós hve mikil áhrif foreldrar hafa á störf íþróttafélaga. Jákvæðu áhrifin megi sjá í fjáröflunum, sjálfboðaliðastörfum og öllu utanumhaldi árganga sem er talsvert betra en það var þegar hann var yngri. „Í þá daga fór heill flokkur með þjálfara sínum í rútu frá Akureyri til Reykjavíkur (og öfugt ef keppt var fyrir norðan), gisti saman einhvers staðar og spilaði leiki. Fararstjóri datt inn nokkru síðar en annars voru allir iðkendur á ábyrgð þjálfarans á meðan á keppnisferðinni stóð. Nú fer nánast allur foreldraskarinn með og heldur utan um þetta með þjálfurum liðanna.“ 

Neikvæðu hliðina segir Samúel hins vegar þá að foreldrar hafa á tíðum sterkar skoðanir á því hvar barnið/ungmennið sitt stendur gagnvart öðrum iðkendum sama flokks. Sum hver bjóða sig fram til starfa fyrir félagið, meðal annars í barna- og unglingaráðum og stjórnum deilda eða félaga. „Því miður virðist hvatinn þar að baki oft vera að liðka fyrir framgangi eigin afkvæmis en ekki til að stuðla að faglegu og öflugu starfi félagsins í heild. „Mitt barn er best, mitt barn á skilið að fá þetta eða hitt… HA!!! er mitt barn í B-liðinu? Burt með þjálfarann!“

Foreldrar grípa til baktals gegn þjálfara

Samúel segir að ef einhver er ósáttur með stöðu sína eða afkvæmis síns innan liðs er sé það viðhorf á undanhaldi að leggja harðar að sér, bæta sig og berjast fyrir því sem viðkomandi langar í. „Margir foreldrar grípa frekar til þess ráðs að baktala þjálfara og vinna gegn honum leynt og/eða ljóst. Þannig frétti ég fyrr í vetur að foreldrar einhverra leikmanna í mínu liði hafi reynt að safna undirskriftum til að fá mig rekinn á haustmánuðum. Ekki vegna þess að ég hefði gerst brotlegur í starfi, heldur eingöngu vegna þess að afkvæmi þeirra voru ekki að fá tækifærin sem þeim þótti þau eiga rétt á. Þessir foreldrar ræddu aldrei við mig, iðkendurnir spurðu mig aldrei hvað þær þyrftu að bæta til að komast nær byrjunarliðinu eða fá fleiri tækifæri á vellinum. Við erum að tala um meistaraflokkslið í Olísdeildinni, ekki 7.flokk stúlkna. Firringin og frekjan nær alla leið, upp og niður alla aldursflokkana.“

Flestir þjálfarar eru fagmenn að sögn Samúels og segist hann enn eftir að hitta þjálfara sem tapar viljandi leikjum með því að láta leikmenn sem hann telur betri en aðra sitja á bekknum eða utan hóps út af engu. Hins vegar horfi þjálfarar á marga aðra þætti en hæfileika með boltann, því lið virki ekki nema leikmenn virki saman. „Stóru sigrarnir koma ekki með leikmönnum sem nenna ekki að leggja sig fram eða vinna illa með öðrum. Stundum stendur valið á milli tveggja álíka góðra leikmanna og þá spila talsvert fleiri þættir inn í ákvörðun þjálfara. Hvor mætir betur, hvor gerir aðra í kringum sig betri, hvor leggur sig meira fram, hvor gefur meira í þetta, hvor er betri í vörn, hvor er betri í sókn, hvor er að þínu mati ákveðnari og svo mætti lengi telja. Aðstæður geta líka breyst og þjálfarinn metur stöðuna á annan hátt einhverjum vikum seinna, það er það skemmtilega við þetta allt saman,“ segir Samúel og segir marga foreldra eiga erfitt með slíkt.

„Þetta virðast margir foreldrar eiga ákaflega erfitt með að skilja eða sætta sig við, telja sig annað hvort vita meira um handbolta en margreyndir þjálfarar sem vinna með hópinn mörgum sinnum í viku, eða ætla sér að beita áhrifum sínum eða völdum til að fá óverðskulduð „tækifæri“ fyrir börnin sín. Dæmin um slíka framkomu foreldra eru því miður allt of mörg og einskorðast ekkert frekar við eitt íþróttafélag en annað, ekkert frekar við eina íþróttagrein en aðra.“

Linnulaust áreiti gegn Arnari allt tímabilið

Stefán Arnar bróðir Samúels þjálfaði einnig hjá HK og segir Samúel bróður sinn hafa gengið í gegnum erfiðari hluti en hann hjá félaginu.

„Arnar bróðir minn, sem starfaði hjá HK líkt og ég, gekk í gegnum talsvert grimmari öldusjó. Þar fór fólk úr hópi foreldra 3ja flokks drengja sem Arnar þjálfaði að vinna markvisst að því að losa sig við hann. Ástæða óánægjuradda í upphafi? C er ekki að fá sömu tækifæri og G eða Y, er í B-liðinu þegar foreldrinu finnst að hann eigi að vera í A-liðinu, spilar ekki stöðuna sem hann langar til eða er ekki í nægilega stóru hlutverki að þeirra mati. Fjölmargir fundir áttu sér stað og áreitið á Arnar nánast stanslaust allt tímabilið. Skapast ekki annars meiri sérfræðiþekking á íþróttinni á því að fylgja barninu sínu upp yngri flokkana en að starfa við þjálfun í áratugi? Það mætti að minnsta kosti halda það miðað við áganginn sem hann þurfti að sitja undir.

Í byrjun þessa árs var haft samband við mann sem átti að koma inn sem aðstoðarþjálfari Arnars og meðal annars hjálpa til við að lægja öldurnar í 3ja flokki félagsins. Samúel segir hann vera margreyndan þjálfara í þessu tilviki sem var klár í verkefnið. „Hann fær þau skilaboð frá yfirþjálfara yngri flokka að barna og unglingaráð muni hafa samband við hann á næstu dögum til að ganga frá samningum. Það er aldrei klárað því svo virðist sem einhverjir innan félagsins séu staðráðnir í að losna við Arnar með öllum ráðum,“  segir Samúel, sem segir að nokkrum dögum seinna hafi bróðir hans verið boðaður á fund, „þar sem ætlunarverkið mistekst. Á þeim fundi er ákveðið að leysa úr samskiptaflækjum milli hans og ákveðinna aðila í foreldrahópnum og horfa fram á veginn. Enn dregur þó barna og unglingaráð HK lappirnar með að ganga frá samningum við aðstoðarþjálfarann, hefur í raun aldrei samband við hann. Hvers vegna fæ ég ómögulega skilið því hann hefði sannarlega verið mikill fengur fyrir liðið og hópinn í heild sinni.“  

Arnari sagt upp vegna brota á siðareglum

Viku síðar, 17.janúar, barst ÍSÍ bréf um að Arnar hafi hagað sér ósæmilega gangvart iðkendum og brotið siðareglur félagsins. HK sé meðvitað um stöðuna en sé ekki að gera neitt í málinu segir Samúel.   „Innihald þessa bréfs er byggt á sögusögnum og dylgjum og standast nákvæmlega enga skoðun þegar kafað er í málið. HK fær tilkynningu frá ÍSÍ um að þeim hafi borist þetta bréf og eiga í einhverjum samskiptum við samskiptaráðgjafa ÍSÍ sem fer með málið fyrir hönd ÍSÍ, en ekkert úr þeim samskiptum er notað sem ástæða uppsagnar sem á sér loks stað 24. janúar á þessu ári. Þar eru ástæður uppsagnar sagðar „brot á siðareglum“ sem felst í að Arnar tók poka með sokkum og leyfði iðkendum að eiga, og „samskiptavandi milli Arnars og foreldra í hópnum“,“segir Samúel.

Segir hann uppsögnina og allt ferlið í kringum hana efni í farsa sem hann gæti talað lengi um. Segir hann að í stuttu máli hafi barna- og unglingaráð HK gengið fram hjá formanni handknattleiksdeildar félagsins við brottreksturinn. Samningur Arnarshafi ekki verið við barna og unglingaráð, heldur við deildarstjórnina og þar er formaður handknattleiksdeildar æðstur. Segir Samúel að vitað hafi verið að formaðurinn myndi ekki brottreksturinn og því farið framhjá honum og undirskrift fengin frá framkvæmdastjóra félagsins sem er einnig hluti af þessum foreldrahópi. Eftirmenn Arnars í þjálfuninni séu eiginmaður framkvæmdastjórans og tveir góðir vinir hans, annar þeirra starfandi yfirþjálfari hjá félaginu með afar skrautlega forsögu í sínum samskiptum við iðkendur. Spyr Samúel hvort þetta sá faglega unnið.

Telur vinnubrögð ÍSÍ fyrir neðan allar hellur

Segir Samúel að meðhöndlun ÍSÍ á ásökunum gegn bróður hans séu fyrir neðan allar hellur og nauðsynlegt fyrir íþróttasambandið að fara vel yfir þetta mál til að tryggja að eitthvað álíka gerist aldrei aftur. Sambandið, í þessu tilfelli samskiptaráðgjafi ÍSÍ sem fékk málið í hendurnar, hafi hvorki rannsakað ásakanirnar markvisst eða af fagmennsku. Sú einfalda og auðvelda leið hafi verið valin að senda Arnari póst um að sambandinu hafi „borist erindi“ en málinu sé lokið vegna þess að „hann er ekki lengur starfandi hjá félaginu“.

„Arnar vissi ekkert um þetta mál fyrr en hann fær þennan póst frá samskiptaráðgjafa ÍSÍ, var ekki tilkynnt hverjar ásakanirnar voru og var því aldrei beðinn um að gefa sínar skýringar á þeim. Innihald bréfsins er honum hulið allt þar til hann fer á fund með þessum aðila daginn sem hann hverfur. Þið megið reyna að setja ykkur í þau spor að fá slíkt erindi til ykkar, fá engar upplýsingar um hvað verið er að saka ykkur um og velta fyrir ykkur hvernig þið mynduð bregðast við. Svona vinnubrögð eru óásættanleg með öllu,“ segir Samúel. 

 „Ef þjálfari gerist sekur um einhver brot gagnvart iðkendum, líkt og Arnar var sakaður um eða gefið í skyn að hann hafi gert í þessu bréfi, er fráleitt að viðkomandi sleppi við frekari rannsókn vegna þess eins að hann sé hættur störfum hjá félaginu þar sem meint brot áttu sér stað. Sambandinu ber að mínu mati skylda til að kæra viðkomandi til lögreglu, í það minnsta að sjá til þess að málið sé rannsakað að fullu ef rökstuddur grunur er á sekt hans/hennar. Reynist viðkomandi sekur á hann ekkert að koma aftur að störfum með börnum og ungmennum. Reynist hann saklaus verða þau sem bera ábyrgð á rógburði að svara fyrir sínar gjörðir. Það á aldrei að vera í boði að bera slíkar ásakanir á borð ef þær eru ekki byggðar á staðreyndum og/eða atburðum, fólk verður að þurfa að standa fyrir máli sínu. Orð bera ábyrgð og það er löngu tímabært að við áttum okkur á því.“

Segir að rústa átti mannorði Arnars

Segir Samúel óvildarmenn Arnars ekki hafa látið sér nægja að ráðast á hann með bréfinu til ÍSÍ og hafa af honum starfið sem þjálfara hjá HK. 

„Nei, það átti sko að ganga alla leið og rústa mannorði hans og atvinnumöguleikum með því að senda samhljóma bréf til Kópavogsskóla þar sem hann starfaði sem umsjónarkennari,“ segir Samúel, sem segir það bréf hafa borist skólanum viku eftir að Arnar var vikið frá HK, eða 1. febrúar.

„Tíminn hefur leitt í ljós að þar er um að ræða sömu dylgjurnar og sendar voru til ÍSÍ. Engar staðreyndir, engir atburðir, ekkert sem heldur vatni þegar rýnt er í það, falskt nafn og símanúmer skrifað undir. Þetta fólk þorir nefnilega ekki að standa á bak við þessa aðför undir eigin nafni eða nöfnum. Og höfum eitt alveg á hreinu, þetta er ekkert annað en aðför að mannorði Arnars og afskaplega grimmileg sem slík.“

Að sögn Samúels afgreiddi Kópavogsbær málið á rétt rúmum tveimur sólarhringum og var Arnar mættur aftur til starfa sem umsjónarkennari 5. bekkjar strax í kjölfarið. „Ekki af því að bærinn vann málið illa, heldur vegna þess að innihald bréfsins var þess eðlis að það var einfalt að afgreiða það sem þvætting. Ef einhver fótur væri fyrir þeim ásökunum sem stóðu í bréfunum tveim, er algerlega ljóst í mínum huga að hann hefði ekki fengið að mæta aftur til að kenna 11 ára börnum. Að halda öðru fram er hreinlega fráleitt.“

Orðrómur spyr ekki um sekt eða sakleysi

Samúel segir að orðrómurinn sem hópur kom af stað um að bróðir hans hafi hegðað sér ósæmilega gagnvart iðkendum sínum lifi vel í handboltasamfélaginu og segir hann að þegar slíkur orðrómur sé farinn af stað virðist ekki skipta miklu máli hvort viðkomandi er sekur eða saklaus. Segist hann síðast hafa frétt af umtali um bróður sinn fyrir viku síðan, rúmum mánuði eftir að hann hvarf. 

„Það elska líka allir að heyra eitthvað krassandi um náungann, smjatta vel á því og segja öðrum hvað einhver á að hafa gert, eða hvað? Frásögnin breytist svo hægt og rólega í eitthvað sem hann eða hún gerði. Snjóboltinn fer að rúlla og sögurnar hlaða á sig fleiri krúsídúllum eftir því sem fleiri bera hana á milli sín og hver og einn segir hana oftar. Áður en þú veist af er allt orðið staðfest því þú ert búinn að heyra það svo oft og jafnvel „frá einhverjum sem þekkir vel til málsins“. Fram á sviðið stíga sjálfskipaðir sérfræðingar sem reyna að upphefja sjálfan sig og stöðu sína innan hreyfingarinnar með því að vera með upplýsingar „úr innsta hring“ að eigin sögn. Í raun hafa þessir sérfræðingar ekkert annað en eitthvað kjaftæði sem þeir hafa heyrt af frá fleiri en einum og tveimur,“ segir Samúel. „Mér þykir einnig afskaplega sorglegt að fá fregnir af að einhverjir séu sannfærðir um sekt bróður míns vegna þess að hann hafði ekki þrek til að standa þessar árásir af sér, án þess að vita neitt til málsins. Arnar hafði staðið í stanslausum árásum í allan vetur og baráttuþrekið einfaldlega á þrotum.“

Samúel segist hafa velt við öllum steinum sem hann gat, meðal annars mætt á fund með framkvæmdastjóra HK, aðila úr barna og unglingaráði og aðila úr aðalstjórn og nánast grátbeðið þau um að fá frásagnir, staðfest atvik eða annað sem gæti runnið stoðum undir að Arnar hafi brotið af sér eða hagað sér ósæmilega gagnvart iðkendum sínum. Segir hann ekkert hafa borist þaðan.

„Þau könnuðust ekki við neitt í þessa áttina er ég ræddi við þau. Því er ekki annað að sjá en að enginn fótur sé fyrir þessum ásökunum og þar af leiðandi er í raun eini óvissuþátturinn hve margir standa á bak við þær, samtímis blasir einnig við hvaðan skíturinn kemur þótt andlitin séu í felum.“

Lá vel við höggi þegar kjaftasögurnar náðu flugi

Arnar átti ekki konu né börn og segir Samúel handboltann hafa komið í þeirra stað og verið bróður sínum allt.

„Bróðir minn var ekki fullkominn frekar en ég eða aðrir, en hann nálgaðist þjálfun og kennslu af einskærri fagmennsku og ekki síst umhyggju fyrir þeim sem hann var að vinna með. Hann lá því vel við höggi þegar kjaftasögurnar náðu flugi og særðu hann að sama skapi dýpra en aðra sem eiga eitthvað annað sem er þeim dýrmætara. Þegar ráðist er á æru þína af slíkum krafti og offorsi getur verið erfitt að streitast á móti. Þetta smitar fljótt út frá sér og kunningjar þínir þurfa jafnvel að kanna málið áður en þeir eru tilbúnir að votta um það hver þú ert, fyrir hvað þú stendur, eða skrifa meðmælabréf fyrir þig,“ segir Samúel og segir þær ásakanir sem beindust gegn bróður hans fjarri manninum sem hann þekkti og var honum svo kær.

„Arnar var ekki allra og hleypti sömuleiðis ekki hverjum sem er inn í sinn innsta hring, en hann var traustur og tryggur, með sterkar skoðanir á málefnum, ófeiminn við að láta þær í ljós og taka rökræður, faglegur í allri sinni nálgun í leik og starfi. Hann var einstaklega laginn með börn og ungmenni, ljúfur og skemmtilegur.“

Samúel segir að samkvæmt stjórnendum Kópavogsskóla eigi bróðir hans sérstakan stað hjá börnunum sem hann kenndi þetta skólaárið fram að andláti sínu. Þar séu allir miður sín yfir því að hafa misst hann. „Ég meina, hvaða toppeintak af kennara getur endað tímana sína á því að kalla yfir hópinn „allir í frímó“ og fá til baka samhljóma svarað „og hlusta á Skímó!“. Eins hafa fyrrum samstarfsmenn, iðkendur og foreldrar úr Selfossi og Fjölni, þar sem Arnar starfaði í 10 og 4 ár, fært okkur sem næst honum standa heilan haug af fallegum sögum sem mála mynd af miklum fagmanni og mannvini. Einhver sem lét velferð iðkenda sinna sig mikið varða og gerði allt sem í hans valdi stóð til að hjálpa þeim innan vallar sem utan. Margir hverjir leituðu áfram til hans þótt hann væri löngu hættur að þjálfa þá og hann var alltaf boðinn og búinn að hjálpa þeim sem það gerðu,“ segir Samúel.

„Á endanum hafði Arnar minn ekki kraftinn til að standa af sér þennan storm, þrátt fyrir að hann hefði þéttan vinahóp á bak við sig, þar á meðal einstaklinga innan íþróttafélagsins HK. Þið sem stóðuð að baki þessum stormi megið bera skömmina að eilífu og ættuð að mínu mati að halda ykkur fjarri öllu íþrótta- og tómstundastarfi héðan í frá, þið eruð ekki hæf til verksins. Feluleikur þeirra seku varpar einnig skugga á alla hina foreldrana í þessum hóp, sem liggja hvert og eitt undir grun um alvarlega aðför að mannorði Arnars á meðan svo er. Aðför sem ýtir honum hægt en örugglega að bjargbrúninni og að lokum fram af henni,“ segir Samúel.

„Við þessa aðila vil ég að lokum segja. Það er vegna framkomu ykkar og gjörða að farinn er frá okkur einn allra færasti þjálfari landsins, afbragðs kennari, mannvinur og yndislegur drengur. Við sem þekktum hann munum sakna hans og syrgja svo lengi sem við lifum, sárin í hjörtum okkar munu aldrei gróa að fullu.“

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Miklir fjárhagserfiðleikar hjá körfuknattleiksdeild UMFN

Miklir fjárhagserfiðleikar hjá körfuknattleiksdeild UMFN
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi

Sviptingar í Landsrétti – Ákæru gegn látinni móður Jónasar James Norris vísað frá dómi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lýsir yfir áhyggjum af vanþekkingu forsetaframbjóðenda

Lýsir yfir áhyggjum af vanþekkingu forsetaframbjóðenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað

Allir efstu sex forsetaframbjóðendurnir hafa djammað