fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
Fréttir

Faðir ríkislögreglustjóra sagður hafa átt á fjórða tug óskráðra og ólöglegra skotvopna

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 3. nóvember 2022 22:08

Sigríður Björk Guðjónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðjón Valdimarsson, faðir Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra, gat ekki gert grein fyrir á fjórða tug vopna þegar lögreglan gerði húsleit hjá honum við rannsókn á hryðjuverkamálinu svokallaða. Guðjón hlaut aldrei réttarstöðu sakbornings þrátt fyrir að játa að hann hafði selt frá sér breytt ólögleg vopn í skiptum fyrir reiðufé. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.

Eins og greint hefur verið frá þurfti Sigríður Björk að segja frá rannsókn málsins vegna vanhæfis þegar að Guðjón faðir hennar, sem er þekktur byssusmiður og vopnasali hérlendis, blandist inn í málið. Á fjórða tug óskráðra skotvopna fannst á heimili hans eftir húsleit en Guðjón var ekki handtekinn og engar upplýsingar hafa verið veittar um stöðu hans í málinu.

Faðir Sigríðar Bjarkar tengist rannsókn hryðjuverkamálsins

Þá kemur einnig fram í umfjöllun RÚV að Sigríður Björk hafi áður þurft að segja sig frá rannsókn máls vegna föður síns. Árið 2018 hafi nafn Guðjóns komið upp í tengslum við rannsókn á meintui vopnalagabroti manns sem hafði rifil í vörslu sinni sem hafði verið breytt í hálfsjálfvirkan rifil.

Guðjón seldi manninum rifilinn en var aðeins yfirheyrður sem vitni en svo fór að hinn ákærði var sýknaður enda tókst ekki að sanna að hann hefði breytt riflinum. Þá var Guðjón yfirheyrður á heimili sínu vegna málsins en ekki á lögreglustöð eins og vant væri.

Faðir ríkislögreglustjóra smíðaði og seldi ólöglega riffla

Nánar er fjallað um málið á vef RÚV

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Í gær

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun