fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

„Hún fór sjálf úr fötunum og sjálf ofan í pottinn“ – „Hennar er nú valdið og yfirburðirnir og þeirra er skömmin“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 11. janúar 2022 14:00

Björk Eiðsdóttir. Mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég játa að við fyrstu fréttir af viðtali Vitaliu við Eddu Falak í hlaðvarpinu Eigin konur velti ég fyrir mér tilganginum með því að opna sig um svo persónulega reynslu,“ segir Björk Eiðsdóttir, blaðamaður og umsjónarmaður helgarblaðs Fréttablaðsins, í leiðara dagsins. Þar fjallar hún um mál málanna, frásögn Vítalíu Lazareva af samskiptum sínum við fimm þáverandi áhrifamenn í samfélaginu.

Björk segir að eftir því sem hún leiði hugann betur að erfiðri frásögn Vítalíu, því sannfærðari sé hún um mikilvægi hennar.

„Ég, sem er komin yfir fertugt, verð reglulega að horfast í augu við þá staðreynd að þó að ég sé kona, femínisti og harður andstæðingur kúgandi áhrifa feðraveldisins, er ég líka afsprengi kynslóðarinnar sem ól mig upp og mótaði,“ segir Björk. Hún bendir á að hún hafi alist upp við að sumt tali maður ekki um og atburði eins og þá sem Vítalía uppliði sé bæði óþægilegt að tala um og heyra af.

Hún var í sambandi við giftan mann og tók þátt í feluleiknum í kringum samband sitt við hann. Hún var heldur ekki nægilega skýr þegar farið var yfir mörk hennar. Hjónadjöful kalla hana sumir og fleiri benda á að hún hefði mátt vita betur,“ segir Björk.

Hún segir að þeir sem hugsa svona hafi ekki upplifað valdaójafnvægi við það sem henni var boðið uppá. Þarna var hún með manninum sem hún elskaði og körlum á aldri við föður hennar boðin afnot af henni.

„Þeir voru margir og þeir voru ríkir, þekktir, voldugir og einn þeirra taldi hún að væri framtíðarmaður sinn. Þeir misnotuðu aðstöðu sína og yfirburði en Vitalia hefur snúið hlutverkunum við. Hennar er nú valdið og yfirburðirnir og þeirra er skömmin. Viðsnúningurinn skiptir máli fyrir okkur öll, takk fyrir að taka slaginn,“ segir Björk sem er þakklát Vítalíu.

Pistilinn í heild sinni má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar