fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Fullyrt að Arnar og Vítalía hafi verið kærð fyrir tilraun til fjárkúgunar – Vítalía vildi 150 milljónir eftir skatt

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. júní 2022 07:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Grant og Vítalía Lazareva hafa verið kærð til héraðssaksóknara fyrir tilraun til fjárkúgunar. Þetta kemur fram í frétt Fréttablaðsins. Í fréttinni kemur fram að kærendurnir séu þeir Ari Edwald, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson.

Kæran á rætur sínar að rekja til uppákomu í sumarbústaðarferð í Skorradal árið 2020. Þar voru þremenningarnir að skemmta sér ásamt og Þor­steini M. Jónssyni og Arnari. Sá síðastnefndi bauð Vítalíu í heimsókn eftir miðnætti þegar ölvun var orðin talsverð en þá hafði Þorsteinn yfirgefið staðinn.

Ári síðar, 28. október í fyrra, fengu þremenningarnir skilaboð frá Vítalíu þess efnis að hún ætlaði að leita réttar síns vegna meintra brota þremenninganna gegn henni. Daginn eftir birti  hún svo færslu á Instagram þar sem hún sakaði þremenninganna ásamt Arnari um að hafa brotið á sér kynferðislega í pottinum. Sú færsla var síðan tekin niður samdægurs.

Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að Arnar hafi afgreitt færsluna sem bull en síðar ákveðið að styðja frásögn Vítalíu og breiða hana hún.

Sendi skilaboð á fjölskyldumeðlimi þremenninganna

Í kæru á hendur þeim Vítalíu og Arnari sem lög­menn Ara, Hregg­viðar og Þórðar af­hentu á skrif­stofu Héraðs­sak­sóknara síðast­liðinn föstu­dag er byggt á því að þau Víta­lía og Arnar Grant hafi staðið sam­eigin­lega að at­burða­rás sem hófst seinni­partinn í nóvember sama ár.

Þá er fullyrt í fréttinni að Vítalía hafi sent skilaboð á eiginkonur Þórðar Más og Hreggviðs sem og son eins þremenninganna. Í símtali við Hreggvið hafi hún tjáð honumað rúss­neskir lög­fræðingar væru að vinna að málinu hennar og að þeir væru staddir á heimili hennar í Mos­fells­bæ.

Þá mun hún hafa lagt á­herslu á að Arnar Grant yrði látinn í friði og að komið yrði vel fram við hann og ekki mætti reka hann úr golf­hópnum Stullunum sem þeir áttu aðild að þre­menningarnir, Arnar og fleiri.

Síðar fóru að berast um­slög í bréfa­pósti, bæði til fjöl­skyldu­með­lima mannana og sam­starfs­manna þeirra í við­skipta­lífinu.

Í um­slögunum sem voru stíluð á til­tekna við­tak­endur með rauðum túss­penna, voru út­prentuð skjá­skot af fyrr­nefndri færslu Vítalíu á­samt miða með orðunum: „Hver borgaði milljónir fyrir þögnina“ og „hver átti húsið með heita pottinum?“

Meðal þeirra sem fengu slíkar póst­sendingar voru kona Þórðar, stjórnar­konur í Festi, fram­kvæmdar­stjóri Krónunnar og stjórnar­for­maður og fram­kvæmdar­stjóri Mjólkur­sam­sölunnar. Síðar í mánuðinum fékk kona Hregg­viðs einnig slíka sendingu.

Vildi 150 milljónir eftir skatta

Þá kemur fram að á meðan skeytasendingunum stóð hafi kær­endur leitað til lög­manns sem þekkti til fjöl­skyldu Vítalíu í þeim erinda­gjörðum að biðja hann að setja sig í sam­band við hana í því skyni að komast að því hvað vekti fyrir henni.

Sá lögmaður fundaði þrisvar með Vítalíu og var Arnar viðstaddur tvo fundi sem ráðgjafi. Herma heimildir Fréttablaðsins að lög­maðurinn hafi borið þre­menningunum þau skila­boð frá Vítalíu og Arnari að greiða þyrfti al­vöru fjár­hæð til að allir gengju stoltir frá borði og hefðu hags­muni af því að þegja. Taldi hann framan af að ger væri krafa upp á fimm­tíu milljónir en meðal gagna málsins er einnig skjá­skot af skila­boðum til lög­mannsins með hug­mynd um greiðslu upp á 3 sinnum þá fjár­hæð, sam­tals 150 milljónir „eftir skatta“ eins og það er orðað. Er í kærunni gengið út frá því að skila­boðin séu frá Vítalíu en Frétta­blaðið hefur ekki fengið stað­fest að svo sé. Í skilaboðunum segir:

„Þá þarf að stilla því upp að þetta er upphæðin eftir skatt svo ekki séu svona brellur eins og þeir voru með síðast. Hvort hægt sé að greiða fyrir ráðgjöf og setja það þannig upp eða eins og sé verið að greiða fyrir hugvit eða slíkt.“

Lesa má ítarlega frétt Fréttablaðsins hér en í henni er meðal annars fullyrt að Arnar og Vítalía hafi orðið margsaga um málsatvik og að þrátt fyrir ítrekaðar hótanír Vítalíu hafi enn ekki verið lögð fram kæra vegna atviksins í heita pottinum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað

Manndráp í Kiðjabergi – Mennirnir voru að byggja sumarbústað
Fréttir
Fyrir 2 dögum

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður

COLLAB HYDRO – Einstakur drykkur fyrir íslenskar aðstæður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum

Siggi hakkari fluttur til Danmerkur og veitti Ekstrabladet viðtal – Mikið gert úr njósnum en lítið úr kynferðisbrotunum