Iryna Venediktova, ríkissaksóknari Úkraínu, segir að snemma í mars hafi hermenn úr rússneskri skriðdrekadeild ruðst inn í hús í bænum Brovary sem er ekki langt frá Kyiv. Þeir skutu karlmann, sem bjó í húsinu, til bana. „Strax eftir morðið nauðgaði ölvaður hermaður, ásamt öðrum til, eiginkonu mannsins margoft,“ skrifar Venediktova á Facebook.
Hún segir að fórnarlambið, sem er 33 ára, hafi borið kennsl á annan ofbeldismanninn en það er Mikhail Romanov. Þetta hefur opnað fyrir möguleikann á fyrstu réttarhöldunum vegna nauðgana rússneskra hermanna í Úkraínu frá því að Rússar réðust inn í landið í febrúar. Business Insider skýrir frá þessu.
En eins og áður sagði þá standa úkraínsk yfirvöld frammi fyrir einni stórri áskorun í málinu en hún er að Mikhail Romanov er ekki í haldi þeirra.
Venediktova sagði í samtali við The Guardian að ekki sé vitað hvort hann berjist enn í Úkraínu, sé farinn heim til Rússlands eða hafi fallið í átökunum.
En engu að síður hefur ákæra verið gefin út á hendur honum og réttarhöldin munu hefjast að honum fjarstöddum.
Venediktova skorar á hvern þann sem getur að aðstoða yfirvöld við að hafa uppi á Romanov.