fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Margrét segir þrjá karlmenn hafa áreitt vinkonur sínar á þremur mínútum – „Þetta voru bara svona efnaðir, „flottir“ karlar um fimmtugt“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 11. janúar 2022 12:32

Margrét Bjarnadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Reiðin sem blossaði upp innra með mér eftir fréttir fimmtudagsins er nátengd reiðinni sem ég fann fyrir jól eftir að hafa farið á bar með vinkonum mínum þar sem stór hópur karlmanna, um og yfir fimmtugt, var þegar staddur.“

Svona hefst pistill sem listakonan Margrét Bjarnadóttir skrifar en pistillinn birtist á Vísi. Í pistlinum segir Margrét frá því hvað gerðist þegar hún fór á umræddan bar með vinkonum sínum.

„Klukkan var átta þegar við gengum inn á staðinn, allar með grímur. Við vorum rétt komnar inn úr dyrunum þegar ókunnugur karlmaður gengur upp að vinkonu minni, dregur niður grímuna hennar og strýkur henni í framan. Hún bandar honum frá sér og okkur er vísað til borðs sem við áttum frátekið, á góðum stað, út af fyrir okkur, með útsýni yfir Austurvöll,“ segir hún.

Þessi áreitni var ekki einsdæmi þetta kvöldið. „Vinkona mín fer á barinn til að panta sér drykk og þar sem hún bíður eftir afgreiðslu kemur maður upp að henni og byrjar að pota í hana og vinur hans að káfa á henni. Hún gengur í burtu án þess að ná að panta sér drykk. Við fáum þá að panta drykki frá borðinu okkar þannig að við þurfum ekki að standa við barinn. Við vorum búnar að vera inni á staðnum í þrjár mínútur og þremur karlmönnum hafði tekist að sýna þessa hegðun á þeim mettíma. Og einmitt, þetta voru bara svona efnaðir, „flottir“ karlar um fimmtugt. Og klukkan var átta.“

Bar-senurnar rifjuðust upp

Margrét segir að þessi reynsla hafi hvorki verið ný né framandi. „Þetta hefur alltaf verið svona og maður á óteljandi svona sögur en kannski af því að ég var ekki að drekka áfengi þetta kvöld og maður hafði ekki farið á barinn lengi og önnur metoo bylgjan hefur verið í gangi, þá var þetta svo ótrúlega skýrt og þolið gagnvart þessu í sögulegu lágmarki,“ segir hún og bætir við að þetta hafi verið eins og eitthvað illa skrifað og ófrumlegt MeToo-sýnidæmi.

Við þetta fóru allar bar-senurnar í gegnum tíðina að rifjast upp fyrir Margréti. „Allt óumbeðna káfið, óumbeðnu samtölin og óumbeðnu „af hverju brosirðu ekki? þú ert fallegri þannig“-kommentin og hvað þetta var allt fullkomlega glatað – og er. Og hvað það er ótrúlega skrítið að þetta hafi ekkert breyst eftir alla umræðuna síðustu ár og mánuði. Breytingin virðist allavega ekki hafa ratað á barina. Að minnsta kosti ekki á barina sem miðaldra karlarnir sækja.“

„Þeir eru ekki ungir – en heldur ekki orðnir gamlir“

Margrét veltir því fyrir sér hvort þessi kynslóð karlmanna eigi sérstaklega erfitt með umræðuna og breytingarnar sem nú er verið að kalla eftir. „Þeir eru ekki ungir – en heldur ekki orðnir gamlir. Þeir eru í hringiðunni, í áhrifastöðum, yfirmenn, stjórnendur fyrirtækja … Þetta er einmitt sú kynslóð karlmanna sem þyrfti að vera sérstaklega meðvituð um kúltúrinn sem hefur fengið að viðgangast og hegðunar- og viðhorfsbreytingarnar sem þurfa að eiga sér stað. Annars munu þeir úreldast mjög fljótt,“ segir hún

Hún hefur þó á tilfinningunni að margir þeirra nenni lítið að setja sig inn í þetta málefni. „Finnst þeir kannski vera þokkalega menntaðir og civiliseraðir og að þetta snerti þá ekkert sérstaklega. Finnst þetta bara vesen, óþægilegt og þreytandi. Þeir eru kannski meðvitaðir um umræðuna en ég hef á tilfinningunni að upplýsinga-upptakan hjá sumum sé mjög grunn og stutt í óþolið – en ef maður hlustar bara með egóinu sínu eða í vörn, þá meðtekur maður ekki neitt,“ segir hún.

„Sumir geta því aldrei fyllilega skilið hvað þarf að breytast. Taka það ekki raunverulega til sín. Þeir geta jafnvel virst meðvitaðir og upplýstir í orði en eru fljótir að missa tökin á borði. Þeim finnst kannski eins og verið sé að taka eitthvað frá þeim. Nú sé þeirra tími. En hvað er raunverulega verið að taka frá þeim?“

„Við þurfum öll að taka umræðuna til okkar“

Margrét tekur það sérstaklega fram að þegar hún er að tala um „þá“ og heila kynslóð þá er hún að sjálfsögðu bara að tala um suma. „Ég veit að margir karlmenn hafa tekið umræðuna mjög alvarlega og lagt sig fram um að hlusta en oft er það þannig að þeir hlusta af mestu athyglinni sem þurfa kannski síst að taka hlutina til sín,“ segir hún.

„Reyndar held ég að við þurfum öll að taka umræðuna til okkar og hlusta vandlega vegna þess að þetta snýst ekki bara um að breyta hegðun og viðhorfi, heldur einfaldlega að vera vakandi fyrir henni í samfélaginu og okkar nánasta umhverfi – og fordæma þegar við verðum vitni að þessari gömlu og úreltu hegðun – eða komum auga á hana hjá okkur sjálfum. En ég leyfi mér áfram að tala um „þá“, þessa karlmenn.“

„Fyrst og fremst viðbjóðslegt og ömurlegt“

Margrét segir þá að það sé eins og þessir menn skilji ekki hvað er raunverulega átt við þegar talað er um tilkallið sem þeir virðast sjálkrafa telja sig hafa. „Tilkall til líkama annarra, tilkall til samtals, tilkall til athygli, tilkall til aðeins meiri virðingar en konan – bara pínu meiri virðingar. Eins og það sé sjálfsagt og eðlilegt,“ segir hún.

„Þetta tilkall getur verið ótrúlega lúmskt og sumir gera sér jafnvel ekki grein fyrir því að þeim finnist þeir innst inni hafa þetta tilkall. Og svo virðast hlutirnir geta brenglast rækilega í krafti aldurs, stöðu, peninga og valds. Eins og afhjúpaðist svo skýrt nú í lok vikunnar. Áður en þeir vita af eru þeir allsberir í heitum potti með þremur félögum sínum að setja fingur upp í endaþarm ungrar konu sem er jafngömul börnunum þeirra. Þið megið lesa síðustu setningu aftur.“

Að lokum segist Margrét hafa tekið eftir því að sumir hafi afgreitt fréttir síðustu daga með því að segja að þetta sé „fyrst og fremst sorglegt“ en hún segir að það sé ekki raunin.

„Nei, þetta er fyrst og fremst viðbjóðslegt og ömurlegt og það þarf að ræða þetta – meira og lengur. Fletta lögunum af, einu af öðru – því þetta er í mörgum, hárfínum lögum og þetta snýst ekki bara um fimm spillta og dómgreindarlausa karla úti í bæ.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri

Maður á sjötugsaldri í gæsluvarðhald vegna andláts konu á Akureyri
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga

Manndrápsmálið á Suðurlandi – Hinn látni sagður hafa hringt í kærustu sína skömmu fyrir andlátið og sagst hafa fallið úr stiga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“