fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Þetta finnst Íslendingum um bólfarahvatningu Viðreisnar – „Má þá loksins ríða í sundi?“

Eyjan
Fimmtudaginn 15. apríl 2021 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, vakti heldur betur athygli í gær á Alþingi þegar hún hvatti landsmenn til að fjölga sér í faraldrinum.

Sagði hún í ræðu sinni um störf þingsins að fæðingartíðni íslenskra kvenna hafi aldrei verið lægri og hefði dregist saman um því sem nemur hálfu barni á hverja konu á tíu árum. „

Aldurspíramídi sem er á hvolfi getur ekki staðið undir velferðinni og á Íslandi fæðast í dag of fá börn til þess að halda jafnvæginu til lengri tíma litið. Kappsmál stjórnvalda á þess vegna að vera að stuðla að frekari barneignum og þess vegna er það beinlínis í hag okkar að reka fjölskylduvæna pólitík,“ sagði Þorbjörg. Sagði hún fleiri lítil börn til lengri tíma bæta lífskjör allra í landinu og því ætti að hvetja landsmenn til að ferðast innanhúss í COVID-19 og þá helst í svefnherbergið til að búa til börn.

Þetta lagðist misvel í landsmenn sem nokkrir deildu áliti sínu á samfélagsmiðlinum Twitter.  Margir töldu betra að hleypa inn fleiri hælisleitendum til að fjölga landsmönnum, aðrir tóku vel í þessa hvatningu, enn aðrir bentu á að barnseignir eru ekki endilega fyrir alla eða á allra færi og sumir veltu fyrir sér hvort ríkið ætti að hafa afskipti af svefnherbergjum landsmanna.

 

https://twitter.com/hruturteits/status/1382434651462103045

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“