fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Árlega verða tíu til fimmtán undir fertugu bráðkvaddir

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 19. janúar 2021 07:59

Það eru hugsanlega tengsl á milil hjartavandamála og svefnvanda. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á hverju ári verða tíu til fimmtán manns undir fertugu bráðkvaddir hér á landi. Í flestum tilfellum eru það hjartavandamál sem eru orsökin en þau geta verið dulin. Dauðsföllin tengjast í fæstu tilfellum líferni fólks og geta átt sér stað hvar og hvenær sem er.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að oft virðist það unga fólk sem deyr skyndidauða, sem einnig kallast að verða bráðkvaddur, vera heilsuhraust en undir niðri leynist sjúkdómur eða hjartagalli sem enginn vissi af.

Í flestum tilfellum tengist þetta hjartanu eða lungunum og oft er um arfgeng vandamál að ræða. Raflífeðlisfræðilegar truflanir í hjarta eða hjartavöðvasjúkdómar eru algengastir og spilar erfðabreytileiki gjarnan mikilvægt hlutverk.

Margvíslegir utanaðkomandi þættir, á borð við áföll eða mikið álag, bæði andlegt og líkamlegt, geta einnig haft áhrif. Það er sjaldgæft að skyndidauði ungs fólks tengist líferni þess. Ekki tekst alltaf að skýra orsakir skyndidauða þrátt fyrir ítarlegar rannsóknir.

„Skyndidauði hjá ungum einstaklingi veldur oft gríðarlegum óhug hjá fjölskyldu og í nærumhverfinu því þetta getur verið algerlega ófyrirséð. Þetta er fólk sem virðist vera í blóma lífsins,“ sagði Davíð O. Arnar, hjartalæknir á Landspítalanum, í samtali við Fréttablaðið. Ásamt Gunnari Þór Gunnarssyni, Gunnlaugi Sigfússyni, Helgu Óttarsdóttur, Hirti Oddssyni og Kristjáni Guðmundssyni, læknum, flytur hann fyrirlestur í dag á Læknadögum um skyndidauða ungs fólks.

Um 200 manns deyja skyndidauða hér á landi árlega, meirihlutinn er fólk yfir fertugu og skiptir lífsstíll og aldur oft meiru hjá þessum hópi en þeim sem eru undir fertugu. Kransæðasjúkdómur og afleiðingar hans eru þar í lykilhlutverki.

Fréttablaðið hefur eftir Davíð að skyndidauði geti átt sér stað í öllum aldurshópum, einnig hjá börnum. Ungt fólk geti dáið skyndidauða hvar og hvenær sem er, í vöku eða svefni.

Læknarnir munu einnig fjalla um hvernig er hægt að greina orsakir skyndidauða ungs fólks, meðhöndla og fyrirbyggja. Ein af leiðunum er að rannsaka þá vel sem hafa orðið fyrir áfalli og lifað af og nánustu fjölskyldu þeirra því oft geti verið um erfðagalla að ræða. skyndidauði er oft fyrirvaralaus en stundum geta vísbendingar verið komnar fram. „Það er auðvitað erfitt að fyrirbyggja hluti sem ekki er kannski nein vísbending um. En ef það er saga um ótímabær dauðsföll eða alvarlegar hjartauppákomur í ættinni liggur beinast við að láta athuga sig,“ sagði Davíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“

Framsóknarmenn styðji ÁTVR og forvarnir – „Atlaga Sjálfstæðisflokksins að ÁTVR er ævintýraleg“
Fréttir
Í gær

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa

Pálmatré raunhæft verkefni en aðeins eitt tré mun rísa
Fréttir
Í gær

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“
Fréttir
Í gær

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi

Íslenska lögreglan tók niður síðu hjá rafmyntasvindlurum – Gætu fengið 20 ára fangelsi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd

Mótmælin á Tenerife – Vill ekki ferðamenn með „allt-innifalið“ armbönd