fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Yfir 100 sagt upp hjá Isavia

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 30. mars 2020 15:09

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Isavia sagði í dag upp 101 starfsmanni og bauð 37 starfsmönnum áframhaldandi starfs í minnkuðu starfshlutfalli. Enn fremur mun fyrirtækið fækka mjög í sumarráðningum.

Starfsmönnum var tilkynnt um þetta á starfsmannafundi sem hófst kl. 15.

Þetta eru viðbrögð fyrirtækisins við þeirri kreppu sem kórónuveirufaraldurinn. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu um þetta segir að uppsagnirnar nái eingöngu til starfa á sviðum þar sem verkefnum fækkar í óákveðinn tíma. Fréttatilkynning er eftirfarandi:

„Isavia hefur í dag gripið til uppsagna í kjölfar þeirra gríðarmiklu áhrifa sem útbreiðsla Covid 19 hefur á ferðamannastraum til Íslands. Flestar verða uppsagnirnar á Keflavíkurflugvelli þar sem ljóst er að verkefnum mun fækka í óákveðinn tíma. Mikil áhersla er lögð á að félagið verði reiðubúið að blása til sóknar á ný þegar dregur úr áhrifunum af Covid-19.

Aðgerðirnar ná til 138 starfsmanna, þar sem 101 starfsmanni verður sagt upp og 37 starfsmönnum boðið áframhaldandi starf í minnkuðu starfshlutfalli til framtíðar. Þessu til viðbótar verður sumarráðningum fækkað verulega.

„Við komumst því miður ekki hjá því að grípa til uppsagna, en þær ná eingöngu til starfa á sviðum þar sem verkefnum fækkar í óákveðinn tíma,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Við teljum hins vegar á þessari stundu mikilvægt að svara ákalli stjórnvalda um að þau fyrirtæki, sem það geti, standi vörð um störfin í landinu. Við erum í þeirri stöðu að lausafjárstaðan okkar er betri en hún hefur nokkru sinni verið þannig að okkar fyrstu viðbrögð taka mið af því.“

„Áhrifin af samdrættinum hafa mest áhrif á framlínustörf okkar á Keflavíkurflugvelli, m.a. í flugvernd, farþegaþjónustu og bílastæðaþjónustu. Að öðru leiti þá bíða okkar fjöldi verkefna sem snúa m.a. að því að byggja upp innviði félagsins,“ segir Sveinbjörn. „Við þurfum þó að vera meðvituð um það að óvissan næstu mánuði er veruleg og við munum endurskoða stöðuna með reglubundnum hætti. Við þurfum með öllum ráðum að tryggja að aðgangur félagsins að lausu fé dugi þar til hjólin fara að snúast á ný. Við þökkum öllu því góða fólki sem nú er að hverfa frá fyrirtækinu fyrir þeirra störf og óskum þeim jafnframt velfarnaðar.“

Móðurfélag Isavia ásamt dótturfélögunum Isavia Innanlands og Isavia ANS munu að svo stöddu ekki nýta sér úrræði stjórnvalda sem snúa að greiðslu atvinnubóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli vegna tímabundins samdráttar. Þær uppsagnir sem ráðist er í núna eru til að bregðast við minnkandi umsvifum til langs tíma en úrræði stjórnvalda eru fyrst og fremst til að bregðast við skammtímaáhrifum faraldursins. Fríhöfnin mun nýta úrræði stjórnvalda sem gerir félaginu kleift að ráðast ekki í uppsagnir á fastráðnum starfsmönnum sínum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Í gær

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Í gær

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“