fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Hættulegt samfélag kynsveltra karlmanna – Vilja lögleiða nauðgun og upphefja barnaníð

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 14. september 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á internetinu þrífst samfélag eitraðrar karlmennsku, gegnsýrt af kvenfyrirlitningu og ofbeldisfullum öfgaskoðunum.

Þeir sem tilheyra samfélaginu kalla sig „incels“, sem er samsetning á ensku orðunum „involuntary“ og „celibate“, eða þeir sem eru skírlífir þvert gegn sínum vilja, hinir kynsveltu. Upphaflega var incels-samfélagið nokkurs konar stuðningshópur á vefsíðunni Reddit, þar sem einmana einstaklingar deildu sorgum sínum og leituðu stuðnings og þjáningasystkina, en í dag er um að ræða samfélag karlmanna sem telja sig hlunnfarna af konum, að samneyti fallegra kvenna séu mannréttindi og finnst mörgum þeir þurfa að hefna sín á konum fyrir stöðuga höfnun. Undanfarin ár hefur incel-samfélagið orðið meira áberandi í umfjölluninni eftir að meðlimir þess tóku upp á því að fremja voðaverk í nafni kynsveltis, einmanaleika og kvenhaturs.

Hlutgerving kvenna

Innan incel-samfélagsins er hlutgerving kvenna nánast algjör. Þeir vilja að konur séu undirgefnar og auðmjúkar gagnvart yfirburðum karlmannsins, tilbúnar að þjóna honum í einu og öllu og alltaf tilbúnar í kynlíf. Þeir vilja konur sem eru óspjallaðar og tala um að verðgildi kvenna rýrni hlutfallslega í samræmi við þann fjölda karlmanna sem þær hafa sofið hjá. Incel-menn telja sig upp til hópa óaðlaðandi, óframfærna og jafnvel ófríða. Þeir hafna því þó að þeir eigi, sökum þessa, að slá af kröfum sínum um útlit þeirra kvenna sem þeir eltast við. Þeir vilja ekki konur sem þeir segja venjulegar eða Beckys, heldur fallegar, ljóshærðar fyrirsætur sem þeir kalla Staceys. Þeir gefa konum gjarnan einkunn á bilinu 0–10 og vilja flestir ekkert koma nálægt konu sem fær undir sjö í einkunn. Þeir vísa einnig frekar til kvenna sem kvenkynsins (e. females) en slík orðanotkun ópersónu- og hlutgerir konur enn frekar.

Á fimmta tug látnir

Undanfarin fimm ár hafa meðlimir samfélagsins í auknum mæli snúið sér að ofbeldisbrotum til að hefna sín á konum. Frægastar eru árásir sem með réttu mætti kalla hryðjuverk, en einnig hefur hluti samfélagsins dásamað nauðganir og kynferðisbrot, það sé toppurinn á valdi karlmannsins yfir konunni.

Elliot Rodger varð eins konar guð meðal incel-manna

Frægasta árásin átti sér stað þann 23. maí, 2014, þegar maður að nafni Elliot Rodger banaði sex og slasaði fjórtán í skotárás á háskólasvæði Kaliforníu-háskóla í Santa Barbara. Elliot var þungvopnaður og hafði ætlað sér að ráðast inn á heimavist stúlkna og skjóta allar konur sem hann sæi. Honum tókst þó ekki að komast inn í bygginguna og hóf þá skothríð á gangandi vegfarendur. Rodger skilgreindi sig sig sem incel og skildi eftir sig 137 blaðsíðna stefnuyfirlýsingu og nokkurn fjölda YouTube-myndbanda þar sem hann talar um kynsveltið sem konur hafa neytt hann í með stöðugum höfnunum, og að tími hefndarinnar sé runninni upp. Eftir skotárásina framdi Elliot sjálfsvíg og varð í kjölfarið tekinn í dýrlingatölu í incel-samfélaginu og veitti öðrum incel-hryðjuverkamönnum innblástur með sínum voðaverkum.

Þann 7. desember, 2017, hóf William Atchison skotárás í menntaskóla í Nýju-Mexíkó. Tveir féllu auk Williams sem fyrirfór sér í kjölfarið. William hafði gengið undir dulnefninu Elliot Rodger á samfélagsmiðlum, þar sem hann lofsöng hinn æðsta herramann (e. supreme gentleman) Elliot Rodger.

Þann 14. febrúar, 2018, féllu sautján og jafn margir særðust í skotárás í menntaskóla í Flórída. Gerandinn, Nikolas Cruz, hafði skrifað á samfélagsmiðla „Elliot Rodger mun ekki gleymast.“

Færslan sem Minassian birti á Facebook fyrir árásina í Toronto

Hinn 23. apríl, 2018, ók Alek Minassian sendiferðabíl á gangandi vegfarendur í Toronto í Kanada. Þar létu 10 manns lífið og 16 slösuðust. Alek var 25 ára gamall háskólanemi. Hann var með hreinan sakaferil og þeir sem þekktu til hans lýstu honum sem hlédrægum og meinlausum. Hann var á einhverfurófinu sem olli honum félagslegum erfiðleikum. Fyrir árásina hafði hann birt færslu á Facebook þar sem hann hyllti áðurnefndan Elliot Rodger og tilkynnti að bylting kynsveltra karmanna væri hafin. Réttað verður yfir Alek á næsta ári.

Árið 2018, þann 2. nóvember, myrti Scott Beierle tvær konur og særði fimm, áður en hann fyrirfór sér í jógastúdíói í Flórída. Hann hafði áður verið handtekinn fyrir að áreita konur kynferðislega og hafði birt myndbönd á sér á YouTube þar sem hann viðhafði hatursfulla orðræðu um konur. Hann var reiður yfir að eiga ekki kærustu og vísaði í myndböndum til Elliot Rodger.

Í janúar á þessu ári var Christopher Clearing handtekinn eftir að hann hafði lýst yfir áformum sínum um skotárás. Vildi hann verða næsti incel-fjöldamorðinginn og bana eins mörgum konum og hann mögulega gæti. Christopher sagðist aldrei hafa átt kærustu og aldrei stundað kynlíf og þótt hann hafi ekki sagt það beint þá er almennt talið að hann hafi skilgreint sig sem hluta af incel-samfélaginu.

Síðastliðinn þjóðhátíðardag Íslendinga, 17. júní,  hóf Bryan Isaac Clyde skothríð í Texas. Enginn lét þó lífið því lögreglumenn skutu Bryan til bana áður en hann náði að valda manntjóni. Bryan hafði deilt myndum á samfélagsmiðlum sem greindu frá incel-hugmyndafræðinni. Hann var einnig öfgasinnaður hægrimaður. Eftir árásina þótti rétt að hermenn á herstöð í nágrenninu fengju fræðslu um incel-samfélagið þar sem um „raunverulega ógn við almenning og herinn væri að ræða.“

Athvarf nauðgunar- og barnaníðshugmyndafræði fær athvarf á Íslandi

Í nóvember á síðasta ári var spjallsíðu incel-manna úthýst af léni sínu í Svartfjallalandi fyrir að hvetja til ofbeldis og hatursorðræðu. Vefsvæðið fékk þá nýtt heimili á Íslandi og vefslóð með endinguna .is þó svo að síðan sjálf hafi í raun verið vistuð í Þýskalandi. Sú síða var almennt spjallsvæði incel-samfélagsins, sem óx út frá upphaflega spjallsvæðinu á Reddit. Aðrar sérhæfðari incel-síður voru í kjölfarið færðar til Íslands. Þær síður eru öllu meira ógnvekjandi en almenna svæðið, en þar er um að ræða incel-samfélag þar sem finna má karlmenn sem girnast stúlkur undir lögaldri, á annarri síðu koma saman incel-menn sem trúa því að konur þrái fátt heitar en að vera nauðgað. Á þessum sérhæfðu síðum má sjá ógnvekjandi hugmyndafræði þar sem beinlínis er hvatt til kynferðisofbeldis og barnaníðs. Til dæmis er nefnd ein af skilgreiningunum á barnaníðs-incels: „Ef þú girnist vinkonur dóttur þinnar, eða dóttur þína sjálfa.“ Þessar sérhæfðu síður eru enn opnar og enn með .is-endinguna, en almenna spjallsvæðið færði sig í vor yfir til Kólumbíu og fékk endinguna .co. Það sem Kólumbía og Ísland virðast eiga sameiginlegt í þessum efnum er hversu auðvelt það er að kaupa og skrá lén.

Heimildamynd BBC dregur upp ógnvekjandi mynd

Catfishman notar grímu þegar hann kemur til fundar við konur

Nýlega gaf sjónvarpsstöðin BBC út heimildamyndina Inni í leyndu samfélagi incelsins, sem vakið hefur mikla athygli. Í myndinni er rætt við þrjá einstaklinga sem skilgreina sig eða hafa skilgreint sig sem incel. Einn þeirra, Catfishman, leggur stund á það að sigla undir fölsku flaggi á stefnumótasíðum þar sem hann platar konur til að mæta á stefnumót. Þegar þær svo mæta, og halda að þær séu að fara að hitta myndarlegan karlmann stekkur Catfishman fram, vopnaður myndbandsupptökuvél, og hefur þær að háði og spotti. Spyr hann þær: „Hélstu virkilega að karlkyns fyrirsæta myndi falla fyrir þér? Þú ert feit og ljót, af hverju komstu hingað að hitta fyrirsætu.“ Síðan deilir hann myndböndunum á netinu. Í heimildamyndinni segir hann að með þessu móti sé hann að hefna sín á konum fyrir að hafa hafnað honum í gegnum tíðina. Catfishman, eða Michael Rabadan, hefur komist ítrekað í kast við lögin fyrir brot gegn nálgunarbanni, heimilisofbeldi, og fyrir að hrella konur á netinu. „Ég er ekki að drepa þær,“ segir hann í myndinni. „Ég er bara að svipta hulinni af því hverjar þær í raun og veru eru.“ Hann greinir jafnframt frá því að hann frói sér stundum yfir myndböndunum sem hann tekur og að ef konur hefðu ekki lagt Elliot Rodger í einelti þá hefði hann aldrei framið þessi morð. „Ef þetta kvenkyn kemur ekki fram við karlmenn af virðingu, þá munu þeir drepa þær. Þannig  er það bara.“

Í myndinni er einnig rætt við sérfræðing í stafrænni menningu, dr. Kaitlyn Regehr. Hún segir að önnur incel-hryðjuverkaárás sé óumflýjanleg og verði líklega gerð innan skamms tíma. „Við lifum núna á tímum hatursglæpa.“ Hún segir að lögreglan ætti að líta þessa glæpi sömu augum og aðra hatursglæpi sem framdir eru í nafni trúarofstækis.

Ný mynd um Jókerinn slær í gegn meðal kynsveltra

Áhyggjur hafa vaknað um að ný kvikmynd um erkióvin Leðurblökumannsins, Jókerinn, muni hvetja incel-menn til ofbeldisverka. Leikarinn Joaquin Pheonix gerir Jókernum skil í myndinni og hefur persónan hlotið samúð áhorfenda. Myndin fjallar um leit Jókersins að hamingjunni, sem snýst svo upp í andhverfu sína og fyllir hann hatri og hefnigirni. Incel-menn tengja við þessa vegferð og hafa því margir talið að Jókerinn sjálfur sé incel-maður, og því hefur vaknað sá ótti að incel-menn leiti í auknum mæli í sömu aðferðir og Jókerinn til að fá útrás fyrir gremju sína og hatur.

Ógn sem eykst

Heiminum virðist stafa sífellt meiri ógn af incel-samfélaginu. Samkvæmt óvísindalegri rannsókn sem miðillinn vox.com gerði er mikill meirihluti incel-manna frá Evrópu eða Norður-Ameríku og flestir þeirra eru hvítir karlmenn á þrítugsaldri eða yngri. Samfélagið byrjaði sem meinlaus vettvangur fyrir einmana, sorgmædda karlmenn en hefur þróast upp í bergmálshelli kvenhaturs og reiði. Meðlimir samfélagsins grípa æ oftar til ofbeldis. Ísland er talið mikið jafnréttisland þegar litið er til stöðu karla og kvenna, þótt vissulega eigi enn eftir að stíga þónokkur mikilvæg skref til algjörs jafnréttis. Incel-menn fyrirlíta þessa þróun. Inni á spjallsvæði sínu hafa incel-menn í umræðum um Ísland bæði lýst yfir velþóknun á útliti íslenskra kvenna og vanþóknun á hve samfélagið er femínskt. Ekki er vitað um þekkt dæmi um íslenska incel-menn en þó má aldrei útiloka að slíkir menn finnist hér á landi.

Orðabók hinna kynsveltu

Incel-samfélagið hefur þróað með sér sinn eigin orðaforða. Orðin eru of mörg til að gera grein fyrir í einni blaðagrein en hér má finna nokkur þekkt dæmi af incel-orðum ásamt skýringum sem gefa vissa innsýn í brenglaða heimssýn þessara manna.

Chad og Stacey – Chad vísar til myndarlegra og frambærilegra karlmanna og Stacey vísar til myndarlegra kvenna. Incels vilja allir sænga hjá konum sem teljast vera Stacey, en geta það ekki því Chad-menn sitja einir að þeim.

Becky – Venjuleg kona. Incels hafa ekki áhuga á Becky-týpum þar sem þær eru ekki nægilega aðlaðandi.

Landhvalur (e. landwhale) – Kona í yfirþyngd.

Forystumenn (e. alphas) – Karlmenn sem eru myndarlegir, sjálfsöruggir og fá að sofa hjá myndarlegum konum.

Rísa (e. ascend) – Þeir incel-menn sem eignast kærustu eða sofa hjá eru taldir hafa risið upp á annað plan og eru ekki lengur incel.

Reipa (e. rope) – Þeir incel-menn sem hafa fallið fyrir eigin hendi eru sagðir hafa reipað sig.

Eins og ER  (e. going ER) – Incel-menn sem eru yfirkomnir af reiði tala um að gera eins og ER; þ.e. að fylgja í spor Elliot Rodger.

Svartapillan (e. blackpill) – Þegar menn opna augun fyrir incel-hugmyndafræðinni er talað um að þeir hafi þegið svörtu pilluna.

Kvenkyn (e. foid) – Incel-menn vísa til kvenna sem kvenkyns en með þessari orðræðu er trú þeirra á algjörum yfirráðum karlmannsins yfir konunni, og hlutgerving kvenna undirstrikuð.

Fangelsisbeita (e. jail bait) – Barnungar stúlkur. Incel-menn girnast margir unglingsstúlkur sem ekki eru lögráða, því þeir trúa því að þær séu hreinni og óspilltari. Auk þess séu þær í blóma lífsins en ekki orðnar gamlar og útriðnar.

Roastbeef-sköp (e. rostie) – Þetta vísar til kvenna sem hafa verið virkar kynferðislega um eitthvert skeið. Incel-menn trúa því að við aukna notkun verði ytri skapbarmar kvenna lengri og svipi því til roastbeef.

Bestun (e. maxxing) – Incel-menn geta lagt stund á bestun til að reyna að höfða frekar til kvenna. Útlitsbestun felst í því að reyna að bæta útlitið, svo sem með því að auka hreyfingu eða fara í lýtaaðgerð. Stöðubestun felst í því að vinna sér inn meiri peninga eða auka völd/áhrif sín. Þetta byggir á þeirri hugmyndafræði að konur laðist að útliti, peningum og völdum.

Viðskeytið -cel er einnig notað í fleiri orðum en bara incels. Feitir meðlimir samfélagsins eru til að mynda fitucels, þeir sem vilja lögleiða nauðgun eru nauðgunarcels, þeir sem koma frá Indlandi eru karrícels og svona mætti áfram telja. Algengt er að incel-menn velji eitt atriði sem þeir trúa að valdi vandræðum þeirra í ástamálum og bæti viðskeytinu þar fyrir aftan.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“