fbpx
Miðvikudagur 30.júlí 2025
Fréttir

Banaði eiginkonu sinni á Akureyri – Nafnleynd á öllum stigum máls gagnrýnd harðlega

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 18. desember 2024 09:00

Akureyri

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaðurinn sem hlaut 12 ára dóm fyrir brot í nánu sambandi og stórfellda líkamsárás með dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra þann 9. desember síðastliðinn heitir Þorsteinn Hermann Þorbjörnsson og er 63 ára.

Þorsteinn hefur notið nafnleyndar hingað til og nýtur nafnleyndar í dómnum sem birtur var 11. desember.

Eiginkona hans, Jakobína Lind Ævarr Jónsdóttir, var fimmtug. Þau eignuðust tvo syni saman og Þorsteinn á dóttur frá fyrra sambandi.

Ákærður fyrir manndráp og stórfelld brot í nánu sambandi

Þorsteinn var ákærður þann 12. júlí fyrir manndráp og stórfelld brot í nánu sambandi, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 22. apríl, svipt eiginkonu sína lífi, en „ákærði beitti hana margþættu ofbeldi og misþyrmdi henni í aðdraganda andláts hennar, en atlaga ákærða beindist meðal annars að kvið, höfði, hálsi, bringu, brjóstkassa og útlimum. Af atlögunni hlaut A margvíslega áverka, eins og nánar er tilgreint í dómi héraðsdóms. Í öðrum lið var hann ákærður fyrir brot í nánu sambandi þann 6. febrúar.

Synir hans og eiginkonu hans heitinnar kröfðust sex milljóna hvor í miskabætur, en þeim voru dæmdar fjórar milljónir hvorum fyrir sig. Þorsteinn var einnig dæmdur til að greiða útfararkostnað upp á tæpa 1,5 milljón, 6.377.793 krónur í sakarkostnað, og 2.341.750 í málskostnað sem renni í ríkissjóð. 

Nafnleynd vekur umræðu og gagnrýni

Dómurinn hefur vakið umræðu í samfélaginu, bæði vegna nafnleyndar hins dæmda allt frá upphafi og í dóminum sjálfum, og vegna lengdar dómsins og að Þorsteinn er ekki dæmdur fyrir manndráp.

Sjá einnig: Dómur yfir manni sem varð konu sinni að bana á Akureyri veldur ólgu – „Það er allt siðferðislega rangt við þessa nafnleynd“

Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, sagði í viðtali við Vísir.is að dómurinn sé vonbrigði.

„Við erum alltaf að reyna að berjast fyrir því að við séum að senda skilaboð út í samfélagið um að heimilisofbeldi og kvennamorð séu á sama stað og önnur morð, annað ofbeldi. Fyrr erum við ekkert að fara að vinna þessa baráttu gegn kynbundnu ofbeldi.“ 

Linda segir furðu sæta að dómurinn sé ekki þyngri en 12 ára fangelsi. Í dóminum er einnig greint frá fjölda atvika þar sem lögregla var kölluð til heimilis hjónanna vegna ofbeldis, allt aftur til ársins 1999. Lindu grunar að dómurinn sé vægari en ella vegna þess að um heimilisofbeldi er að ræða:

„Maður hefur það á tilfinningunni að það vinni gegn dómnum að þetta sé heimilisofbeldi, að þetta langvarandi hræðilega ofbeldi sem hefur átt sér stað skuli enda svona. Ef þetta hefði verið utanaðkomandi aðili sem hefði komið inn á heimilið og framið slíkan verknað, því ef maður les dóminn þá er verknaðurinn greinilega til þess fallinn að valda miklum skaða, þá hugsar maður sig um hvort dómurinn hefði hljómað öðruvísi.“

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Íris hefur greitt af námsláni í 17 ár – Lánið er 800 þúsund hærra í dag: „Námslánið kæfir þig“

Íris hefur greitt af námsláni í 17 ár – Lánið er 800 þúsund hærra í dag: „Námslánið kæfir þig“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Miklum verðmætum stolið í innbroti í Lækjarsmára í nótt

Miklum verðmætum stolið í innbroti í Lækjarsmára í nótt
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þetta er tifandi pólitísk tímasprengja í Evrópu

Þetta er tifandi pólitísk tímasprengja í Evrópu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Pútín fjárfestir – Ætlar að hraðsmíða kjarnorkukafbáta

Pútín fjárfestir – Ætlar að hraðsmíða kjarnorkukafbáta
Fréttir
Í gær

Lítil áhætta sögð á að Íran noti Ísland til fjármögnunar gereyðingarvopna – Áhættuhópur sé þó til staðar

Lítil áhætta sögð á að Íran noti Ísland til fjármögnunar gereyðingarvopna – Áhættuhópur sé þó til staðar
Fréttir
Í gær

Fjölmiðlamaðurinn gáttaður – „Þær eru hreint furðulega dýrar“

Fjölmiðlamaðurinn gáttaður – „Þær eru hreint furðulega dýrar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vont veðurútlit fyrir verslunarmannahelgina en „ýmislegt getur gerst í millitíðinni“

Vont veðurútlit fyrir verslunarmannahelgina en „ýmislegt getur gerst í millitíðinni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Framkvæmdastjóri Fraktlausna kærður fyrir hótanir í garð díselolíuþjófs – „Eina sem skiptir máli eru réttindi glæpamanna“

Framkvæmdastjóri Fraktlausna kærður fyrir hótanir í garð díselolíuþjófs – „Eina sem skiptir máli eru réttindi glæpamanna“