fbpx
Miðvikudagur 30.apríl 2025
Fréttir

Nemendur við MA lesa bók með grófum lýsingum á kynferðisofbeldi – „Við vitum svo miklu meira en áður um triggera”

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 8. október 2024 10:30

Menntaskólinn á Akureyri. Mynd/Kristján J. Kristjánsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nemendur við Menntaskólann á Akureyri eru ósáttir við að vera skikkaðir til þess að lesa íslenska skáldsögu sem inniheldur grófar lýsingar á kynferðisofbeldi. Segja þeir að lýsingarnar geti ýft upp, eða triggerað, minningar af ofbeldi hjá þolendum. Talskona Stígamóta segir að skólayfirvöld eigi að hlusta á og taka tillit til unga fólksins.

Um er að ræða skáldsöguna Blóðberg, sem var gefin út árið 2021. En hún fjallar um unga stúlku í Skagafirði á sautjándu öld sem lifir með ásökunum um blóðskömm eftir að hún elur barn. Þungunin er afleiðing hópnauðgunar. Bókin er kennd í íslensku í öðrum bekk í skólanum.

„Í þessari bók eru grófar og ítarlegar lýsingar á grófu kynferðisofbeldi og nánara tekið til hópnauðgun,” segir París Anna Bergmann, einn af nemendunum sem hafa barist gegn því að bókin sé skyldunámsefni.

Geta ekki farið afsíðis án þess að opinbera sig

París ásamt Ásdísi Lind Vigfúsdóttur hafa skrifað langt og ítarlegt bréf þar sem upplistaðar eru áhyggjur nemenda. Að þeirra sögn hefur málið verið mikið rætt á meðal nemenda, svo sem í spjallhópi. Meðal annars að fólk sem hafi orðið fyrir ofbeldi geti ekki farið afsíðis eða gengið út úr kennslustofunni án þess að upplýsa allan bekkinn um að þau hafi orðið fyrir slíku. Í stað þess að finna fyrir öryggi og stuðningi í skólastofunni þurfi nemendur að upplifa vanlíðan.

Bókin er kennd á öðru ári í íslensku í MA. Mynd/Forlagið

Auk þess að ræða við kennara og skólameistara, þá hafa nemendurnir leitað til og fengið stuðning hjá Stígamótum, Bergsins headspace, Aflsins, oddvita Samfylkingarinnar í bæjarstjórn, Barna og ungmennaráði heimsmarkmiða SÞ og Ungmennaráði Akureyrarbæjar.

Ekki í stríði við kennara eða rithöfund

Hún tekur það skýrt fram að nemendurnir eru ekki í stríði við kennara eða rithöfund bókarinnar, Þóru Karítas Árnadóttur. En baráttunni sé ekki lokið. „Í dag ætlum við að ákveða hvert við förum með þetta næst,“ segir hún.

Hlusta eigi á ungt fólk

Í samtali við DV segir Drífa Snædal, talskona Stígamóta, að skólayfirvöld eigi að hlusta á ungt fólk þegar það biðst vægðar undan svona efni.

Drífa Snædal segir að skólayfirvöld eigi að hlusta á nemendurna. Mynd/Ernir

„Það er alveg ljóst að kynferðisofbeldi er útbreitt, sérstaklega í þessum aldurshópi. Ef að þau segja að þetta veki hjá þeim óhug og þetta geti verið triggerandi fyrir þau sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi þá á að hlusta á það,“ segir Drífa. „Við vitum svo miklu meira en áður um triggera. Hvað getur valdið afturhvarfi til ofbeldis sem þú hefur orðið fyrir.“

DV náði ekki tali af skólameistara MA fyrir gerð þessarar fréttar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“

Sigríður Björk bregst við njósnamálinu: „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af því“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“

Vilhjálmur sár eftir freklega innrás í einkalíf hans – „Dætur mínar tvær eru í viðkvæmri stöðu“
Fréttir
Í gær

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“

Björgólfur Thor sagður hafa borgað 33 milljónir fyrir njósnir gegn aðilum tengdum hópmálsókn gegn sér – „Ég er bara mjög sleginn yfir þessu“
Fréttir
Í gær

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust

Davíð varð olnbogabarn skólakerfisins eftir höfuðhögg sem hann varð fyrir 9 mánaða gamall – Kallar eftir breytingum því við hljótum að vera að gera eitthvað vitlaust
Fréttir
Í gær

Strengslit Mílu við Laugarbakka

Strengslit Mílu við Laugarbakka
Fréttir
Í gær

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag

Minnir á að símar og akstur fara ekki saman eftir óhugnanlegt slys ungrar dóttur sinnar á sunnudag
Fréttir
Í gær

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“

Ökumaður á gráum jeppa flúði eftir að hafa keyrt á hjólreiðamann á hættulegum gatnamótum – „Þarna fara fjöldamörg skólabörn um á morgnana“
Fréttir
Í gær

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“

Segir samskiptaráðgjafa ÍSÍ hafa platað sig í viðtal og horft fram hjá 75 jákvæðum umsögnum – „Mér finnst glæpur, þetta álit“