fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Fyrrum samstarfsmaður David Attenbourough dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir viðurstyggilegt dýraníð

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 10. ágúst 2024 21:30

Adam Britton var dæmdur fyrir viðurstyggileg brot sín

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski dýrafræðingurinn Adam Britton, sem gat sér gott orð fyrir vinnu sína sem sérfræðingur hjá BBC, hefur verið dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir dýraníð. Var Britton sakfelldur í 56 ákæruliðum fyrir brot gegn 42 hundum sem hann hélt í gegnum á landareign sinni í Ástralíu þar sem hann var búsettur.  Leitaði hann sérstaklega uppi hunda sem fólk auglýsti gefins útaf flutningum að breyttum aðstæðum.

Britton var giftur en hann lifði tvöföldu lífi og faldi myyrkaverk sín fyrir eiginkonu sinni, Erin.

Meðal sönnunargagna sem notuð voru við sakfellingu Britton voru hans eigin myndbandsupptökur af því þegar hann beitti hundana hrottalegu ofbeldi og misnotaði þá kynferðislega. Dómari málsins sagði hegðun Britton vera „ólýsanleg brenglun“ en auk fangelsisdómsins má Britton ekki halda dýr

Britton, sem er 53 ára gamall, lauk doktorsprófi í dýrafræði í Bretlandi en hann flutti svo til hinum meginn á hnöttinn þar sem hann varð sérfræðingur í hegðun og atferli krókódíla og vann fyrir ýmsar sjónvarpsstöðvar.

Sjá einnig: Dómari varaði viðstadda við ólýsanlegum myrkraverkum krókódílasérfræðings – „Ég get ekki hætt. Ég vil það heldur ekki“

Í umfjöllun um dóminn kemur fram að gestir í dómssal hafi tekið andköf af hryllingi yfir viðurstyggilegum lýsingum á brotum Britton en 39 af hundum hans drápust út af pyntingum hans og kynferðislegri brenglun. Þannig hélt hann úti sérstöku pyntingaherbergi þar sem hann misnotaði mörg dýrin. Þá var hann stundum í samskiptum við fyrrum eigendur dýranna og fullvissaði þá um að hundunum liði vel þegar sannleikurinn var sá að hundarnir höfðu þegar verið kynferðislega misnotaðir, pyntaðir og drepnir.

Að endingu var það myndband sem hann hafði sjálfur deilt á netinu sem kom upp um myrkraverkin. Lögreglumönnum sem rannsökuðu myndböndin tókst að greina merkingu á ól eins hundsins sem varð til þess að böndin beindust að Britton og var hann handtekinn í apríl 2022. Auk gríðarlegs magns af myndböndum þar sem dýr voru misnotuð fannst einnig talsvert magn ef hrottalegu barnaníðsefni í fórum Britton.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart