fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Úkraínskur njósnaforingi varar við stríðsþreytu á Vesturlöndum

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 18. janúar 2024 07:00

Kyrylo Budanov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar. Mynd:Úkraínska varnarmálaráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kyrylo Budanov, yfirmaður leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR), viðurkennir að víglínurnar í landinu hafi ekki breyst mikið á síðasta ári og segir að tvær ástæður skýri það að mestu.

Hann ræddi nýlega við franska dagblaðið Le Monde um stríðið en nú eru tæp tvö ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og töldu sig eiga sigurinn vísan á nokkrum dögum. En þess í stað mættu þeir harðri mótspyrnu Úkraínumanna og hafa ekki náð þeim árangri sem þeir væntu. Líklega hafa mörg hundruð þúsund manns látist vegna stríðsátakanna og ekki er að sjá að þeim fari að ljúka.

Í viðtalinu varar Budanov meðal annars við þeirri stríðsþreytu sem er farið að gæta á Vesturlöndum. „Þeir sem eru þreyttir á stríðinu, verða að búa sig undir að gefast upp fyrir Rússum þegar þeir hertaka lönd þeirra,“ sagði hann og hvatti Vesturlönd til að halda áfram hernaðarstuðningi við Úkraínu.

Hann lagði einnig áherslu á að sá tími sé ekki runninn upp að hægt sé að hefja friðarviðræður við Rússa. „Samningaviðræður geta hafist þegar báðir aðilar hafa áhuga á því. Sú staða er ekki uppi núna,“ sagði hann.

Hann ræddi einnig um það sem hann kallar rússnesku þversögnina. „Sérstök rússnesk þversögn hefur komið mér á óvart. Allir héldu að Moskva væri með sterkan her og veikan efnahag. En það hefur sýnt sig að þessu er öfugt farið. Það getur verið að efnahagslífið hiksti en það er ekki þannig að Rússar svelti. Víðs fjarri því,“ sagði hann.

Út frá þessu sagðist hann telja að refsiaðgerðir Vesturlanda hafi ekki skila tilætluðum árangri og hvatti þau til að herða þær enn frekar og þrengja að rússneska bankakerfinu.

Hvað varðar gang stríðsins sagði hann að tvær ástæður séu aðallega fyrir því að staðan á vígvellinum hafi ekki breyst mikið á síðasta ári. Önnur þeirra er mikil notkun árásardróna sem hafi gert báðum aðilum ókleift að sækja fram. Hin er að mikið hafi verið notað af jarðsprengjum, viðlíka notkun hafi ekki sést síðan í síðari heimsstyrjöldinni.

Hann sagðist bjartsýnn á að stríðsgæfan snúist Úkraínu í vil á þessu ári. Á síðasta ári hafi Úkraínumenn gert fyrstu árásina á hinn hertekna Krímskaga og er það aðeins upphafið sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag
Fréttir
Í gær

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda

Sautján ára deila um jarðir á Snæfellsnesi á leið fyrir dóm – Maður sem lést fyrir hálfri öld er einn eigenda
Fréttir
Í gær

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu
Fréttir
Í gær

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“

Segist ítrekað rændur í Bónus nema hann afgreiði sig sjálfur og krefst endurgreiðslu – „Takk má leggja inn á reikning“
Fréttir
Í gær

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks