fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Trans-stríðið: Tekist á um fræðslu Samtakanna 78

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 17. apríl 2023 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir sem virkir eru í baráttu hinsegin fólks segja að bakslag hafi orðið í mannréttindabaráttu þess stóra og litríka hóps. Lýsi það sér ekki síst í andstöðu við mannréttindi trans fólks. Meint transfóbía er sögð vaða uppi, jafnvel meðal samkynhneigðra. Eldur Ísidór, samkynhneigður maður sem er stofnandi Samtakanna 22 –  Hags­muna­sam­taka sam­kyn­hneigðra, amaðist við samningum um fræðslu Samtakanna 78 í grunnskólum, í grein sem hann birti í Morgunblaðinu þann 11. apríl. Þar segir meðal annars:

„Í til­felli sveit­ar­fé­laga er greitt fyr­ir fræðslu í skól­um, en sveit­ar­fé­lög­in hafa ekki hug­mynd um hvað er verið að kaupa. Þau hafa ekki hug­mynd um hvernig stend­ur til að „fræða“ börn­in í skól­un­um.

Ég hef ör­ugg­ar heim­ild­ir fyr­ir því að sveit­ar­stjórn­ar­fólk hafi beðið um að fá að sjá fræðslu­efnið sem á að nota í skól­un­um, áður en samn­ing­ar eru und­ir­ritaðir. Það hef­ur ekki gengið eft­ir sem skyldi.

Þegar ég kom út úr skápn­um fyr­ir um 25 árum tók ég þátt í aktív­isma sem sneri að því að ung­ling­ar fengju vitn­eskju um sam­kyn­hneigð og ólík fjöl­skyldu­form sam­hliða kyn­fræðslunni.

Eldur segir að umdeildar hugmyndir kynjafræðinga hafi ratað inn í hinseginfræðsluna:

Aldrei hefði okk­ur dottið í hug að um­deild­ar hug­mynd­ir kynja­fræðinga myndu ryðja sér braut inn í skól­ana okk­ar og þær kennd­ar sem vís­inda­leg­ar staðreynd­ir. Að börn­um yrði kennt að líf­fræðilegt kyn ákv­arði ekki kyn þitt, held­ur ein­hver „til­finn­ing“ innra með þér. Sú til­finn­ing kall­ast á trú­máli kynja­fræðinga „kyn­vit­und“.“

Sakaði Samtökin 78 um að ljúga að skólabörnum

Öllu meiri athygli vakti Moggagrein grunnskólakennarans Helgu Daggar Sverrisdóttur sem spurði hvort Samtökin 78 gerðust brotleg við barnaverndarlög með fræðslu sinni. Helga skrifaði:

„Ég tel það særandi og móðgandi að segja barni að það sé kannski í öðrum líkama. Sé ekki það kyn sem það fæddist. Að barnið sé strákur, án lims, en ekki stelpa sem er þvert á líffræðilega staðreynd. Barn hefur ekki þroska, getu eða þor til að mótmæla slíku. Sennilega á það við í gegnum leik- og grunnskólann. Það er vanvirðandi háttsemi við barn og foreldra þess að halda því fram að heilbrigðisstarfsfólk geti sér til um kyn barnsins við fæðingu.“

Helga sagði ennfremur:

„Að bera lygar á borð fyrir börn sem geta ekki varið sig, farið í gagnrýna umræðu og svarað fræðsluaðila er vanvirðandi háttsemi, særandi og móðgandi. Börn hafa ekki þekkingu og hafa ekki skoðað aðrar hliðar málaflokksins eins og nauðsynlegt er til að svara fræðsluaðilum transsamtakanna um transmálaflokkinn. Samtökin hafa haldið fram að börn séu í sjálfvígshættu fái þau ekki viðeigandi meðferð við kynvanda sínum. Engar rannsóknir styðja þann málflutning og er börnum beinlínis hættulegur. Alveg ljóst er að ef samtökin ræða þetta í fræðslunni stefna þau heilsu barna í hættu.“

Kennarasambandið bregst við grein Helgu

Kennarasamband Íslands sá sig knúið til að bregðast við skrifum kennararns með harðorðri yfirlýsingu. „Hvers kyns mismunun, svo sem á grundvelli kyns, kynþáttar, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar, sem lítilsvirðir eða misbýður einstaklingi eða hópi sem fyrir henni verði, verður ekki liðin,“ sagði þar og var minnt á jafnréttisáætlun sambandsins gegn mismunun. Viðhorf Helgu eru hörmuð og mikilvægi hinsegin fræðslu fyrir kennara áréttað. Ennfremur segir:

„Samtökin ’78 hafa um langt skeið verið samstarfsaðili skóla þegar kemur að vinnu gegn hvers kyns mismunun barna og ungmenna. Við hörmum það viðhorf sem fram kemur í umræddri grein og erum þess fullviss að íslenskir kennarar fylgja jafnréttisáætlun okkar og vinna að hagsmunum allra barna og gegn hvers kyns fordómum. Þar eru fulltrúar Samtakanna ’78 öflugir liðsmenn í baráttunni, íslenskum ungmennum til heilla.“

Helga sökuð um fáfræði

„Þetta er fólk sem veit ekk­ert um hvað það er að tala. Ég átta mig ekki á hvaðan þetta kem­ur nema þá helst frá vanþekk­ingu og for­dóm­um,“ sagði Daníel E. Arnarson, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, í viðtali við Morgunblaðið. Sagði hann skoðun Helgu endurspegla ákveðna herferð gegn trans fólki sem færst hafi í vöxt undanfarið. „Þetta kem­ur bara frá vanþekk­ingu og trans­fób­íu. Allt fræðslu­efnið okk­ar er op­in­bert á vefn­um Ö til A. Við erum heiðarleg og með allt op­in­bert.“

Sagði hann grein Helgu virðast þjóna þeim tilgangi að skapa tortryggni. „Auðveld­asta leiðin til að gera það er að segja að ein­hver sé að fela eitt­hvað eða að boða eitt­hvað á skjön við það sem þau segja op­in­ber­lega.“ Daníel sagði ennfremur:

„Við eig­um öll rétt á okk­ur og eig­um að fá að blómstra eins og við erum. Við [Sam­tök­in ’78] erum ekki að segja nein­um hvernig þau eru. Raun­veru­leik­inn er sá að þarna eru ein­stak­ling­ar sem eru trans, sem eru kynseg­in og við erum ein­fald­lega að end­ur­spegla sam­fé­lagið.“

Segir illt innræti stýra málflutningnum

Baráttu- og trans konan Arna Magnea Dranks birti grein um málið á Vísir.is sem hefur vakið athygli. Magnea minnir á að tjáningarfrelsi veiti fólki ekki leyfi til að segja hvað sem er og ákveðin orðræða sé ólögleg samkvæmt lögum.

„En þegar lögum er ekki fylgt og afleiðingar haturs orðræðunnar er nánast engin, þá er auðvelt að áætla sem svo að tjáningarfrelsinu sé engar skorður settar. Þennan vagn hoppa þau svo á sem hafa sem hæst í fullyrðingum sínum að trans fólk sé hættulegt.“

Arna spyr hvers vegna fólk sjá sig knúið til að lýsa yfir hættu af trans fólki, trans fólk sé í hæsta lagi 1 til 2 prósent af heimsbyggðinni. Hún spyr hvar ógnin af trans fólki sé. Hún blandar sér í umræðuna um þátttöku trans kvenna í íþróttum:

„Margir lesa um að trans fólk, aðallega verið að ræða um trans konur í þessu sambandi, muni taka yfir öll verðlaun á heimsmeistaramótum og ólympíumótum ef ekkert er að gert. Aftur vil ég benda á að við erum að tala um brotabrot af heildarmannfjölda og litlar sem engar líkur að trans konur séu að fara að dominera íþróttaviðburði heimsins. Fyrir utan það að vísindin hafa sýnt fram á að trans konur hafa enga yfirburði gagnvart öðrum konum (nefndar sis konur héðan í frá) eftir að hafa verið í hormónameðferð í ár eða lengur. Hvað varðar yfirburði í íþróttum þá er það staðreynd að fólk kemst áfram vegna meðfædda eiginleika sem má rekja til erfða og jafnvel líffræðilegra frávika. T.d. framleiðir Michael Phelps sundkappi af náttúrunnar hendi mun minna af mjólkursýru en meðalmanneskjan og hefur líkamsbyggingu (langa handleggi, langa fótleggi) sem nýtast vel í sundi. Engum dettur í hug að segja að hann, vegna líffræðilegra frávika, ætti ekki að taka þátt í keppnum. Svo má ræða um Brittney Griner sem er 2.06 metrar á hæð, langt yfir meðalhæð bæði karla, kvenna og kvára en engum dettur í hug að banna henni að spila körfubolta þrátt fyrir að búa yfir líffræðilegum yfirburðum þegar horft er til heildarinnar. Nei það er ráðist á trans konur, sem í flestum tilfellum þora oftast ekki að stunda íþróttir til að byrja með vegna fordóma, og þær sakaðar um að vera ógn við aðrar konur. En ógnin er engin nema í hugum þeirra sem vilja sjá ógn þar sem engin er.“

Arna bendir á að trans konur hafi haft rétt til að keppa á öllum alþjóðlegum stórmótum undanfarin ár og ekki ein einasta trans kona hafi unnið til verðlauna á þeim í einstaklingsgreinum.

Hún greinir frá því að ofbeldi gegn trans fólki hafi aukist mjög mikið í Bretlandi undanfarið. Fólk sem trúi því að trans fólk sé af hinu illa ali á hatri gegn því. „UN Women gaf nýlega út að samkvæmt þeirra rannsóknum eru trans konur fjórum sinnum líklegri að verða fyrir alvarlegu ofbeldi en sis konum. Nauðganir og morð á trans konum fer einnig fjölgandi og ef það er sett í hlutfallslegt samhengi, þá eru trans konur álíka stór hluti mannkyns og náttúrulega rauðhært fólk með blá augu. Ég er viss um að það þætti frétt ef um 400 rauðhærðir einstaklingar með blá augu væru myrtir á hverju einasta ári, en lítið er rætt um þessi morð í fjölmiðlum og þeir sem þau fremja nást sjaldnast og enn sjaldgæfara er að þeir fái dóm sem hæfir glæpnum,“ segir Arna sem víkur síðan að mýtunni um karlmanninn sem reynir að koma sér inn í kvennarými til að brjóta af sér:

„Svo er það hin mýtan, um „karlinn“ sem vill gera allt sem þeir geta til að komast inn í kvennarými. Þetta er auðvitað algjörlega fáránlegt og gerir lítið úr þeim ótal rannsóknum sem hafa sýnt fram á að það að vera trans er líffræðilegt frávik, svipað og fæðast örvhentur og trans fólk er nákvæmlega það sem það segist vera, enda hefur alþjóðaheilbrigðismálastofnunin ásamt öllum helstu sérfræðistofnunum á svið læknavísinda og geðheilbrigðisvísinda gefið það út að það að vera trans er ekki geðsjúkdómur en ef hið líffræðilega frávik sé ekki meðhöndlað á viðeigandi hátt, valdi það kynama sem geti leitt til geðrænna vandamála á borð við þunglyndi og sjálfskaðandi hegðunar.“

Arna bendir á að karlmenn sem vilji nauðga séu í 99% tilvika gagnkynhneigðir karlmenn. Rotin epli finnist meðal trans fólks eins og annarra en ekki hvarfli að neinum að stimpla alla gagnkynhneigða karlmenn sem afbrigðilega eða nauðgara.

Hún segir að raddir öfgafólks hafi náð að sá fræjum efa og ótta í hugum þeirra sem þekkja ekki til trans fólks en láti glepjast af áróðrinum.

Ekki til neins að rökræða við fólk sem ekki vill hlusta

Arna segir að við séum ekki kynið okkar heldur við sjálf, hvert og eitt einstakt og ólíkt öðrum. Ekkert geti breytt því að við erum það sem við erum og vorum sköpuð til að vera. Hins vegar sé hægt að gera líf fólks erfiðara með fáfræði, fordómum og hatri. Arna segir:

„Er ekki komin tími til að vakna og átta sig á að ógnin sem er verið að selja ykkur er tálbeita frá þeim raunverulegu ógnum sem steðjar að okkur öllum og hætta að gefa röddum hatursins endalaust svigrúm til tjáningar.

Það rökræðir enginn við rætið innræti.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“

Ásdís Rán svaraði Heimi Má – „Ekki segja að ég geti það ekki, ég er hér núna“