fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Kallar stjórn Flokks fólksins saman vegna andlegs ofbeldis, hótana og kynferðislegrar áreitni

Erla Hlynsdóttir
Þriðjudaginn 13. september 2022 09:46

Guðmundur Ingi Kristinsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og varaformaður Flokks fólksins, kallar stjórn flokksins til fundar til að ræða „stöðugt andlegt ofbeldi, hótanir og jafnvel kynferðislegt áreiti“ í garð kvenleiðtoga flokksins og sjálfboðaliða á Akureyri.

Þetta kemur fram í Facebookfærslu sem Guðmundur skrifaði nú í morgun. Þar greinir hann frá því að honum hafi ítrekað borist fregnir að því að kvenleiðtogar flokksins og sjálfboðaliðar á Akureyri „hafi mátt sæta ótrúlega niðrandi og fyrirlitlegri framkomu síðustu mánuði frá ákveðnum trúnaðarmönnum flokksins.“

Guðmundur segir í færslunni: „Svo það sé alveg skýrt, þá mun ég óska stjórnafundar og leggja fyrir stjórn að taka fyrir og ræða alvarlega þessar ásakanir. Ég og við í Flokki fólksins munum aldrei sætta okkur við ofbeldi, einelti, hótanir né kynferðislegt áreiti af nokkru tagi innan okkar raða.“

DV hefur ekki enn náð tali af Guðmundi vegna málsins.

Hefur þú frekari upplýsingar um málið? Sendu okkur póst á ritstjorn@dv.is

Hér má lesa færslu hans í heild sinni:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Í gær

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon