fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Blaðamennirnir sakborningar vegna meintrar miðlunar á klámefni – Kynferðisleg myndbönd afrituð og send úr símanum

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 23. febrúar 2022 16:53

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið hefur verið fjallað um Samherja-símamálið svokallaða en nú hafa komið fram nýjar upplýsingar í málinu. Stundin greinir frá því að lögreglan hafi fengið fram játningu hjá einstaklingi sem segist hafa byrlað Páli Steingrímssyni, starfsmanni Samherja, með svefnlyfjum. Þessi sami einstaklingur tók svo síma hans og dreifði efni úr honum til fjölmiðla.

Margir hafa velt því fyrir sér hvers vegna fjórir blaðamenn séu með réttarstöðu sakbornings í málinu en í frétt Stundarinnar um málið kemur sú ástæða fram. Blaðamennirnir fjórir sem um ræðir eru Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Stundarinnar Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans, Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks og Arnar Þór Ingólfsson blaðamaður Kjarnans.

Ljóst er að ekki er um að ræða þjófnaðarbrot heldur miðlun klámefnis og brot á friðhelgi. „Lögreglan hefur staðfest að myndbönd af kynferðislegum toga hafi verið í síma brotaþola og að afrit slíkra myndbanda hafi verið sent úr símanum. Brotaþoli hefur staðfest við lögreglu að í síma hans hafi verið myndbönd af honum í kynlífsathöfnum,“ segir í kröfugerð lögreglu.

„Þar sem X afhenti ekki gögn úr símanum heldur símann sjálfan liggur fyrir að fjölmiðlar sem tóku við símanum afrituðu hann. Ekki er ljóst hvort síminn var afritaður að hluta eða að öllu leyti en ljóst er að þeir sem afrituðu símann hafa þurft að skoða allt sem í símanum var þó þeir hafi bara afritað hann að hluta. Það er ljóst að gögnum úr þessum afritaða síma var dreift á milli fjölmiðlamanna, þ.á.m. hugsanlega kynlífsmyndböndum.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“

Talað um afturför í menntamálum: „Það er eins og það megi ekki umbuna fyrir dugnað“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar

Ekkert lát á hrikalegum inflúensufaraldri – Óttast að staðan muni versna enn frekar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“

Kolla hefur samúð með Þórunni: „Getur ekki verið skemmtilegt hlutskipti að vera skyldaður til að hlusta á stjórnarandstöðu landsins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Kaffistofan er ekki endastöð, hún getur verið upphaf að nýju lífi“

„Kaffistofan er ekki endastöð, hún getur verið upphaf að nýju lífi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“

„Ég fór beyglaður út í lífið, með beyglaða sýn á lífið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“

Inga hjólar í Viðskiptablaðið – „Mér leiðast svona falsfréttir og ég hvet ykkur til að vera gagnrýnin“