fbpx
Mánudagur 02.febrúar 2026
Fréttir

Stefnt á að bólusetja 24.000 manns í vikunni

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 18. maí 2021 08:59

Bólusetning með Pfizer bóluefni í Laugardalshöll Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í vikunni er stefnt að því að bólusetja 24.000 manns með bóluefnum frá Moderna, Pfizer, Jansen og AstraZeneca. Hraðar hefur gengið að bólusetja karla en konur. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er bjartsýn á að áætlanir gangi eftir.

Fréttablaðið skýrir frá þessu. Fram kemur að í vikunni fái um 12.000 manns bóluefni frá Pfizer og skiptast skammtarnir jafnt á fyrri og seinni bólusetningu. Um 1.500 manns fá bóluefni frá Jansen en aðeins þarf eina sprautu af því til að ljúka bólusetningu.

Fréttablaðið hefur eftir Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, að bólusetningar hafi gengið vel og að í Laugardalshöll verði um 16.000 skammtar gefnir í vikunni.

Það hefur gengið hraðar að bólusetja karla en konur og má þar nefna að nú er búið að bólusetja alla karlmenn úr forgangshópi sjö en það eru karlmenn með undirliggjandi sjúkdóma og áhættuþætti vegna COVID-19. Ragnheiður sagði að ástæðan fyrir þessu sé að bóluefni AstraZeneca sé ekki gefið konum yngri en 55 ára. Konur, sem fengu fyrri skammtinn af  bóluefni AstraZeneca, verður boðin seinni sprauta með bóluefni frá Pfizer en það hægir á bólusetningum hjá öðrum konum sem hefðu annars fengið bóluefni frá Pfizer.

„Endurbólusetningar taka svolítið stóran toll, það er yfirleitt helmingurinn af bólusetningunum sem við erum að vinna með,“ er haft eftir henni.

Hún sagði dæmi um að konur, sem hafi fengið eina sprautu af AstraZeneca, kvíði því að fá seinni skammt af öðru bóluefni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varað við fjölskyldufyrirtæki á Selfossi – „Þetta eru svik og stuldur, ekkert annað“

Varað við fjölskyldufyrirtæki á Selfossi – „Þetta eru svik og stuldur, ekkert annað“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hroðaleg meðferð á rússneskum liðhlaupum vekur óhug

Hroðaleg meðferð á rússneskum liðhlaupum vekur óhug
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áralangri deilu á Húsavík um tugi milljóna lokið með sigri hvalaskoðunarrisa

Áralangri deilu á Húsavík um tugi milljóna lokið með sigri hvalaskoðunarrisa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verulega ósáttur við breytingar á Eddunni – „Gefur ranga og ósanngjarna mynd“

Verulega ósáttur við breytingar á Eddunni – „Gefur ranga og ósanngjarna mynd“
Fréttir
Fyrir 3 dögum
Óður til æskunnar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Furðar sig á þessu varðandi áfengisgjöldin – „Ísland er æ meira úr takti við önnur ríki“

Furðar sig á þessu varðandi áfengisgjöldin – „Ísland er æ meira úr takti við önnur ríki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrirspurn um stæði fyrir hreyfihamlaða við skólann hafnað

Fyrirspurn um stæði fyrir hreyfihamlaða við skólann hafnað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sauð upp úr á Ölveri – Vogabúi á sextugsaldri ákærður

Sauð upp úr á Ölveri – Vogabúi á sextugsaldri ákærður
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ljósið flytur í nýtt og rýmra húsnæði á árinu

Ljósið flytur í nýtt og rýmra húsnæði á árinu