fbpx
Þriðjudagur 04.nóvember 2025
Pressan

Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur verið Elísabetu II dýr

Kristján Kristjánsson
Sunnudaginn 27. september 2020 08:30

Elísabet II.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirtækið The Crown Estate, sem sér um rekstur fasteigna bresku konungshirðarinnar, hefur farið illa út úr heimsfaraldri kórónuveirunnar. Fyrirtækið verður nú að færa verðmæti niður um sem svarar til tugi milljarða íslenskra króna.

Samkvæmt frétt The Guardian verður fyrirtækið að færa verðmat eigna sinna niður um 550 milljónir punda en það svarar til um 97 milljarða íslenskra króna. Þetta kom fram þegar fyrirtækið lagði ársreikning sinn fram nýlega.

Reksturinn skilaði 345 milljónum punda í hagnað á síðasta rekstrarári. Eignir The Crown Estate eru nú metnar á 13,4 milljarða punda. Fyrirtækið á stór landsvæði í Englandi, Skotlandi og Wales auk fasteigna í miðborg Lundúna, þar á meðal hina þekktu verslunargötu Regent Street. Þess utan eru persónulegar eignir konungsfjölskyldunnar og Windsor Park.

Fyrirtækið á landgrunnið 22 kílómetra út frá ströndum Bretlands en það tryggir fyrirtækinu miklar tekjur árlega.

Ástæðan fyrir niðurfærslu eignaverðmætisins er aðallega samdráttur í leigutekjum vegna heimsfaraldursins.

Konungsfjölskyldan hefur ekki beinan aðgang að eignum fyrirtækisins og hefur ekkert með daglegan rekstur þess að gera. Fyrirtækið er rekið sem opinbert fyrirtæki sem sér um rekstur eigna konungshirðarinnar. Megnið af hagnaði þess rennur í ríkissjóð sem fékk 3 milljarða punda í arðgreiðslu frá fyrirtækinu á síðasta ári. Fjórðungur hagnaðarins rennur þó til konungsfjölskyldunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Foreldrar fá að sjá nöfn og myndir af dæmdum níðingum

Foreldrar fá að sjá nöfn og myndir af dæmdum níðingum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Játaði til að vernda kærustuna sem svo sveik hana – „Þetta var rosaleg ást, er það ekki? Hún var banvæn“

Játaði til að vernda kærustuna sem svo sveik hana – „Þetta var rosaleg ást, er það ekki? Hún var banvæn“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Bandaríkjamenn íhuga að banna vinsælan netbeini – Ástæðan er þessi

Bandaríkjamenn íhuga að banna vinsælan netbeini – Ástæðan er þessi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rifjaði upp sögu af því þegar Andrés keypti sér 40 vændiskonur á fjórum dögum í Taílandi

Rifjaði upp sögu af því þegar Andrés keypti sér 40 vændiskonur á fjórum dögum í Taílandi
Pressan
Fyrir 5 dögum

Neita að svara spurningum um einkasamkvæmi fjölskyldumeðlima í embættisbústaðnum og gagnrýna fréttaflutning harðlega

Neita að svara spurningum um einkasamkvæmi fjölskyldumeðlima í embættisbústaðnum og gagnrýna fréttaflutning harðlega
Pressan
Fyrir 5 dögum

Trump harðlega gagnrýndur fyrir framkvæmd og útfærslu viðhafnarsalarins – Rak nefndina sem átti að skila umsögn

Trump harðlega gagnrýndur fyrir framkvæmd og útfærslu viðhafnarsalarins – Rak nefndina sem átti að skila umsögn