fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Fréttir

Segir væntanlega nýbyggingu Landsbankans vera bruðl sem eigi eftir að reynast þjóðinni dýrkeypt

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 15. febrúar 2020 16:00

Svona eiga nýjar höfuðstöðvar Landsbankans að líta út

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi bankamaður, Halldór S. Magnússon, fer hörðum orðum um áform Landsbankans um að reisa nýja byggingu fyrir höfuðstöðvar sínar í miðsvæði borgarinnar. Í grein í Morgunblaðinu í dag segir Halldór þetta vera rándýra tímaskekkju og það sé fráleitt hvernig stjórnendur bankans reyni að telja þjóðinni trú um að þessi áform hafi sparnað í för með sér. Halldór ritar:

„Lengi fram eftir 20. öldinni áttu viðskiptavinir banka erindi í bankann til þess að sinna erindum sínum. Nú fara fæstir þeirra lengur í bankann, heldur sinna þeir nær öllum bankaviðskiptum rafrænt heiman frá sér. Sama máli gildir um samskipti starfsmanna milli deilda í banka, þær fara flestar fram rafrænt. Viðurkenna skal þó að stöku fundi starfsmanna innbyrðis eða starfsmanna og viðskiptavina getur verið heppilegt að halda með beinu sambandi þar sem menn hittast. Það hentar hins vegar alls ekki að stefna fundargestum niður í miðborg, miklu heppilegra er að fundir fari fram á hentugum stað utan borgarmiðju jafnvel í næsta byggðarlagi þangað sem auðvelt er að komast og finna næg ódýr bílastæði.“

Halldór segir ekkert réttlæta að bankinn velji dýrustu lóð landsins undir höfuðstöðvar sínar. Hann blæs á fullyrðingar um hagkvæmni þessarar ráðgerðar sem hann telur að reynast muni dýrkeypt. Spádómur hans um framtíð málsins er nöturlegur:

„Undirritaður telur fullvíst að allar fullyrðingar stjórnar Landsbankans um hagkvæmni glæsibyggingar við Reykjavíkurhöfn reynist víðs fjarri öllum raunveruleika. Þjóðin muni sitja uppi með umtalsverðan aukakostnað af ævintýrinu en enginn mun telja sig bera ábyrgðina. Bankastjórnin mun viðhafa þá afsökun að áætlanir hafi ekki reynst réttar, Bankasýslan og ríkisstjórn treystu bankastjórninni! Sömu menn munu halda áfram á sömu braut og málið gleymist áður en nýr dagur rís.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“
Fréttir
Í gær

Nova flytur á Broadway

Nova flytur á Broadway
Fréttir
Í gær

Framkvæmdastjóri hjá DAS svarar Jóhanni – „Ef íbúðin er afþökkuð er hún boðin næsta umsækjanda“

Framkvæmdastjóri hjá DAS svarar Jóhanni – „Ef íbúðin er afþökkuð er hún boðin næsta umsækjanda“
Fréttir
Í gær

Segir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar litlu skila með ærnum tilkostnaði – „Um 250 milljarða. Það eru eitt eða tvö þjóðarsjúkrahús“

Segir þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar litlu skila með ærnum tilkostnaði – „Um 250 milljarða. Það eru eitt eða tvö þjóðarsjúkrahús“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“

Innflytjendur mótmæla niðurskurði til íslenskukennslu – „Hvernig ætlum við að gera þetta“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lést á Hrunavegi eftir að hafa ekið á röngum vegarhelmingi á afskráðum jeppa

Lést á Hrunavegi eftir að hafa ekið á röngum vegarhelmingi á afskráðum jeppa