
Cybertruck-bíllinn er búinn svokallaðri Wade Mode-stillingu sem á er einskonar torfæruhamur sem á að gera ökumönnum kleift að aka í gegnum grunnt vatn, til dæmis læki, ár eða flóð á vegi. Bíllinn hækkar fjöðrunina í hæstu stöðu og rafhlaðan er þrýstijöfnuð til að halda vatni frá rafkerfi ökutækisins.
Þegar lögregla var kölluð á vettvang var ökutækið á bólakafi í vatninu og orðið óökufært og byrjað að taka inn vatn. Engin slys urðu á fólki og tókst ökumanni og farþegum að forða sér úr bílnum áður en illa fór.
Ökumaðurinn sagði lögreglu að hann hefði keyrt út í vatnið viljandi til að prófa umrædda stillingu.
Tesla tekur þó sérstaklega fram í handbók bílsins að það sé á ábyrgð ökumanns að meta dýpt og aðstæður áður en ekið er út í vatn. Þar segir einnig að skoða eigi aðstæður undir yfirborði, aka hægt og snúa við ef vatnið reynist of djúpt. Hámarksdýpt sem ökutækið á að þola er rúmir 80 sentímetrar.
Framleiðandinn bendir jafnframt á að tjón vegna aksturs í vatni falli ekki undir ábyrgð bifreiðarinnar.
Myndskeið sem birtust á samfélagsmiðlum sýna Cybertruck-bílinn berjast við að komast áfram í vatninu áður en hann stöðvaðist. Þar má einnig sjá þegar farþegar komast út um glugga bifreiðarinnar.
Ökumaðurinn var handtekinn fyrir að aka ökutæki inn á lokað svæði við vatnið auk fjölda brota á reglum um vatnsvernd. Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að maðurinn heiti Jimmy Jack McDaniel.
McDaniel sagði við NBC5 að hann hefði áður ekið Cybertruck-bíl sínum í vatni „nokkrum sinnum án vandræða“. Honum var sleppt úr haldi lögreglu í fyrrakvöld, eftir að hafa verið í um sólarhring í haldi.