fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Arteta að fá rosalega launahækkun – Sagðir vilja kaupa þennan leikmann í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 21. maí 2026 09:00

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta er á leiðinni að verða einn launahæsti knattspyrnustjóri heims eftir að Arsenal tryggði sér enska meistaratitilinn í fyrsta sinn í 22 ár.

Samkvæmt enskum miðlum eru viðræður Arsenal og Arteta um nýjan samning langt komnar og búist er við að Spánverjinn fái gríðarlega launahækkun. Núverandi samningur hans átti að renna út næsta sumar.

Arteta hefur umbreytt Arsenal undanfarin ár og leiddi félagið loksins til Englandsmeistaratitilsins þegar Manchester City missti stig gegn Bournemouth á þriðjudagskvöld.

Talið er að nýr samningur muni færa Arteta nær toppnum yfir launahæstu þjálfara heims. Diego Simeone hjá Atlético Madrid er sagður tekjuhæstur með um 26 milljónir punda á ári en Arteta gæti nálgast þá upphæð.

Hann er nú talinn vera með um 10 milljónir punda í árslaun auk bónusa fyrir árangur í Meistaradeildinni.

Arteta mun einnig taka við sem sá þjálfari sem hefur starfað lengst samfleytt í ensku úrvalsdeildinni þegar Pep Guardiola yfirgefur Manchester City í sumar.

Arsenal hyggst ekki slaka á eftir meistaratitilinn og Arteta er þegar byrjaður að skipuleggja sumargluggann. Félagið hefur meðal annars verið orðað við unga sóknarmanninn Eli Junior Kroupi frá Bournemouth.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt