

Mikið af fremsta íþróttafólki er mjög trúað, trúin flytur fjöll að þeirra mati og hjálpar þeim til við að ná árangri. Þetta var til umræðu í hlaðvarpi Dr. Football.
Eiður Smári Guðjohnsen, einn fremsti íþróttamaður í sögu Íslands segir trúna skipa máli og ræðir um það hvernig hún er notuð í íþróttum.
„Það virðist með alla topp íþróttamenn, mér finnst það mjög algengt. Allir sem ná langt í íþróttum eru trúaðir,“ sagði Hjörvar Hafliðason sem stýrir þættinum.
Eiður Smári spilaði á hæsta stigi fótboltans um langt skeið. „Ég get bakkað þetta upp, ég get talað út frá sjálfum mér. Eina sem maður hefur er sína eigin trú, ég ætla ekki að smita þig af því sem ég trúi. Ég er með mitt eigið og vil hafa það fyrir mig,“ sagði Eiður Smári.
En hvernig notar hann trúna? „Ég bið um hjálp þegar ég þarf á því að halda. Reyni að sýna eins mikið þakklæti gerir fyrir allt sem maður hefur og fær að upplifa, og heilsu á fjölskyldunni.“
Hjörvar telur að mikil aukning sé í því að fólk leiti í trúna, „Ég finn þetta á ungum strákum í dag, Þjóðkirkjan er ble og enginn að pæla í henni. Það er bylgja með þessu.“