
Líkamsleifar sem fundurst í óbyggðum í Jinámar í Gran Canaria þann 29. apríl síðastiðinn eru taldar vera af manni sem lýst var eftir árið 2024.
Maðurinn, sem væri 48 ára í dag, hvarf sporlaust árið 2024. Lögregla bíður enn eftir niðurstöðum úr rannsóknum lífsýna til að staðfesta að um þennan horfna mann sé að ræða, en allar líkur eru taldar vera á því.
Líkið fannst grafið á víðavangi og eru rannsakendur að reyna að finna út úr því hvernig það bar til að líkið grófst þarna niður. Engu að síður segja þeir að ekkert bendi til þess að annar aðili hafi verið viðriðinn lát mannsins sem talinn er hafa svipt sig lífi.
Líkfundurinn hefur valdið nokkru uppmámi í Jinámar, sem er í útjaðri Las Palmas á Gran Canaria. Líkið fannst á óbyggðu svæði sem er nálægt fyrirtækjum og íbúahverfi á svæðinu.
Sjá nánar á Canarian Weekly.