fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
433Sport

Jadon Sancho á leið í sögubækurnar

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 8. maí 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jadon Sancho, kantmaður Aston Villa, mun upplifa nokkuð það sem fáir eiga eftir að leika eftir þegar hann fer í sinn þriðja úrslitaleik í Evrópu á þremur árum, þetta gerir hann með þremur félögum í þremur mismunandi keppnum.

Lið Unai Emery snéri einvíginu sér í vil með sannfærandi 4-0 sigri á Villa Park gegn Nottingham Forest í gær. Ollie Watkins jafnaði stöðuna í einvíginu áður en John McGinn skoraði tvívegis og Emi Buendía bætti við fjórða markinu.

Emery mun þar með stýra liði í úrslitum Evrópudeildarinnar í fimmta sinn á ferlinum, en hann hefur unnið keppnina fjórum sinnum áður, þar á meðal þrisvar í röð með Sevilla.

Þetta er sögulegur árangur fyrir Aston Villa, sem síðast lék til úrslita í Evrópukeppni þegar liðið vann Evrópukeppni meistaraliða árið 1982.

Sancho, sem er á láni frá Manchester United, er einnig í sviðsljósinu. Hann gæti leikið sinn þriðja úrslitaleik í röð með þremur mismunandi félögum.

Sancho lék úrslitaleik Meistaradeildarinnar með Borussia Dortmund árið 2024 og vann síðan Sambandsdeildina með Chelsea ári síðar.

Framtíð hans er þó óviss, en lánssamningur hans við Villa rennur út í sumar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool fylgist með manninum sem United hefur lengi verið á eftir – Verðmiðinn ekki lækkað þrátt fyrir daprar frammistöður

Liverpool fylgist með manninum sem United hefur lengi verið á eftir – Verðmiðinn ekki lækkað þrátt fyrir daprar frammistöður
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Vel yfir 100 manns handteknir eftir að óeirðir brutust út í gær

Vel yfir 100 manns handteknir eftir að óeirðir brutust út í gær
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Aston Villa slátraði Forest til að tryggja sig í úrslitaleikinn – Mæta þar Freiburg

Aston Villa slátraði Forest til að tryggja sig í úrslitaleikinn – Mæta þar Freiburg
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Athæfi hans gegn Real Madrid hefur nú einnig áhrif á HM

Athæfi hans gegn Real Madrid hefur nú einnig áhrif á HM
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gæti hafnað því að spila með pabba gamla og skrifað undir hjá stórliði

Gæti hafnað því að spila með pabba gamla og skrifað undir hjá stórliði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Arsenal og Barcelona ætla að slást við City

Arsenal og Barcelona ætla að slást við City