fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
433Sport

Góð tíðindi úr herbúðum Liverpool

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 8. maí 2026 14:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Liverpool hefur fengið jákvæðar fréttir úr herbúðum sínum fyrir leik gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Alexander Isak og Giorgi Mamardashvili eru báðir byrjaðir að æfa á ný og koma til greina í leikmannahópinn. Isak missti af leiknum gegn Manchester United síðastliðna helgi vegna minniháttar meiðsla, en Mamardashvili hefur verið frá síðan hann meiddist í nára í nágrannaslagnum í Merseyside í síðasta mánuði.

Þjálfarinn Arne Slot staðfesti á blaðamannafundi að Isak hefði tekið þátt í æfingum á ný. „Alex æfði með okkur í gær í fyrsta sinn. Það er jákvætt. Hann tók þátt í hluta æfingarinnar og við sjáum hvernig honum líður,“ sagði Slot.

Hann bætti við að Mamardashvili myndi einnig hefja æfingar og staða hans yrði metin. Hins vegar eru Alisson Becker og Mohamed Salah enn ekki tilbúnir og munu ekki taka þátt í leiknum.

„Þeir eru mjög nálægt því að snúa aftur en hafa ekki byrjað að æfa með liðinu enn,“ sagði Slot.

Leikurinn við Chelsea fer fram á Anfield.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls

Stjarnan staðfestir brottrekstur Jökuls
433Sport
Í gær

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt

Bellingham segir þetta lykilinn að því að England geti náð langt