fbpx
Laugardagur 09.maí 2026
Pressan

Pútín sagður fela sig í neðanjarðarbyrgi vikum saman – Óttast valdarán

Pressan
Laugardaginn 9. maí 2026 13:30

Pútín er sagður áhyggjufullur? Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, er sagður óttast valdarán eða að reynt verði að ráða hann af dögum og því er líf hans allt öðruvísi nú en fyrir nokkrum árum.

CNN og Financial Times skýra frá þessu og vitna í skýrslu frá evrópskri leyniþjónustu en báðir miðlarnir hafa séð skýrsluna.

Rússneska leyniþjónustan er sögð hafa fækkað mjög þeim stöðum sem Pútín getur heimsótt. Bæði hann og fjölskylda hans eru hætt að fara á heimili sín í Moskvu og sumardvalarstaðinn í Valdai, sem er á milli Sankti Pétursborgar og Moskvu.

Í leyniþjónustuskýrslunni kemur fram að Pútín hafi ekki heimsótt eina einustu herstöð á þessu ári. Frá 2022 hefur hann að sögn einnig dvalið margar vikur í einu í neðanjarðarbyrgjum, oft í Krasnodar-héraðinu.

Pútín sést þó enn oft á almannafæri en rússnesk yfirvöld hafa ekki staðfest neitt af því sem fram kemur í skýrslunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 5 dögum

Fógetinn reiddi hátt til höggs eftir handtöku MAGA-liða – „Hann komst upp með brot sín þá en ekki núna“

Fógetinn reiddi hátt til höggs eftir handtöku MAGA-liða – „Hann komst upp með brot sín þá en ekki núna“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka

Drukkinn maður pantaði sér skyndibita, sofnaði og var svo sakaður um kynferðisbrot – Konan svarar nú til saka