fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Arnar útskýrir hvers vegna hann dembdi sér í stjórnmálin og valið á flokki – „Ég á samleið með þeim í mörgu“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 8. maí 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnuþjálfarinn Arnar Grétarsson skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi fyrir komandi sveitastjórnarkosningar. Hann fór yfir ástæður þess í Íþróttavikunni á 433.is.

„Þetta kemur þannig til að það er leitað til mín og spurt hvort ég hafi ekki áhuga á að koma,“ sagði Arnar, sem þjálfaði síðast Fylki í Lengjudeild karla í fyrra, en hann á að baki glæstan feril sem leikmaður og þjálfari.

Það var ýmislegt sem spilaði inn í ákvörðun Arnars að taka slaginn með Viðreisn í Kópavogi.

video
play-sharp-fill

„Í fyrra kaupi ég lóð af Kópavogsbæ, tek þátt í útboðinu á 2. áfanga uppi í Vatnsendahverfi. Ég var búinn að basla rosalega í að eiga við bæinn, fá byggingaráform samþykkt, og er enn rúmu ári síðar að baksa við það. Það er svo erfitt að ná í einhvern og fá svör.

Nú hef ég hitt ansi marga sem eru í sömu sporum og það var mikill pirringur með þetta. Það var kannski byrjunarpunkturinn á að ég læt draga mig inn í þetta. Mann langar að láta gott af sér leiða, breyta hlutum og gera þá skilvirkari. Menn eru kannski með miklar fjárfestingar og það er fljótt að hverfa ef tíminn líður, því tími er dýr í fjárfestingum.“

En af hverju Viðreisn?

„Ég á samleið með þeim í mörgu. Það er þetta með að gefa einstaklingnum frelsi til að spreyta sig og ná langt. Við viljum lága skatta, að einstaklingsframtakið blómstri en á sama tíma að velferðin sé aðeins til vinstri og að það sé hugsað um alla.“

Arnar ræðir þessi mál, ákvörðun sína um að fara út í bæjarpólitíkina og framboð Viðreisnar í Kópavogi ítarlega í spilaranum hér ofar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik

Segir frá skilaboðum sem Gabriel sendi honum eftir hið hjartnæma augnablik
433Sport
Í gær

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur

Svakalegur slagur um táning í Svíþjóð – 3,5 milljarða tilboð borist en stórlið íhugar að bjóða enn betur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda

Olise er leikmaðurinn sem Perez ætlar að kaupa – Tilbúinn að borga 130 milljónir punda
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið

Fullyrt að Aron Einar sé líklega á heimleið í Þorpið
Hide picture