fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Vill fá að vita hvað Ölmu finnst um brottreksturinn – „Ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 19. apríl 2026 12:39

Ragnar Freyr Ingvarsson óskar eftir svörum frá Ölmu Möller.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Freyr Ingvarsson, sem er einn þekktasti læknir landsins, hefur óskað opinberlega eftir svörum frá heilbrigðisráðherra og forstjóra Landspítalans um þá ákvörðun spítalans að segja honum upp störfum. Vill Ragnar að í ljósi stöðu hans sem formanns Læknafélags Reykjavíkur og virks þátttakanda í opinberri umræðu um heilbrigðismál snúist uppsögn hans um meira en eingöngu hann sjálfan.

Töluvert hefur verið fjallað um starfslok Ragnars á Landspítalanum en þar var hann í hlutastarfi. Hann tjáir sig um málið í nýjum Facebook-pistli og merkir (taggar) bæði Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og Runólf Pálsson forstjóra Landspítalans.

Ragnar hefur sagt að uppsögnin sé ólögleg. Hann segir í pistlinum að nú séu 11 dagar síðan að hringt var í hann síðla dags og honum sagt upp störfum á Landspítalanum:

„Framkvæmdastjóri lyflækninga bar við ríkri aðhaldskröfu og leggja niður ætti störf. Fyrsti maður sem var valin var til brottrekstrar var framlínustarfsmaður í hlutastarfi þá í launalausu leyfi. Ljóst er að sparnaður af þessari aðgerð er enginn og ekkert hefur bólað á frekari skipulagsbreytingum. Sá hinn sami var líka formaður stéttarfélags og stjórnarmaður í öðru. Virkur í umræðu um heilbrigðismál og í starfshópi heilbrigðisráðuneytis um löðun íslenskra lækna.“

Lýsing Ragnars á augljóslega við hann sjálfan.

Þegi

Hann segir Runólf forstjóra þegja þunnu hljóði um málið og að allir sjái að Landspítalinn hafi engin málefnalög rök fyrir uppsögninni sem sé ólögmæt. Ragnar vill hins vegar meina að mál hans hafi víðari skírskotun en eingöngu til hans sjálfs:

„Er það stefna stjórnvalda að starfsfólk í framlínu sé fyrst út um dyrnar í aðhaldsaðgerðum? Að formenn og stjórnarmenn stéttarfélaga skulu fyrst reknir? Að þeir sem eru virkir í samfélagsumræðu eiga á hættu að gjalda fyrir þátttöku sína með því að missa starf sitt? Hvaða skilaboð er verið að senda til starfsmanna spítalans eða þeirra sem gætu haft hug á því að starfa á þessum vettvang? Ég er ekki einn um að hafa áhyggjur af þessari grafalvarlegu stöðu. Það hafa líka formenn 12 stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu!“

Vísar Ragnar í grein formanna ýmissa fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu þar sem lögð er áhersla á að fólk sem gegni forystuhlutverki í slíkum félögum geti talað opinskátt um stöðu heilbriðgismála án þess að eiga hættu á að vera refsað fyrir það.

Óskar Ragnar Freyr að lokum eftir svörum frá Ölmu Möller um málið:

„Hvað finnst ráðherra heilbrigðismála?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“

Freista þess að kveða niður „aðlögunar-grýluna“ – „Það þarf því ekki að eyða frekara púðri í þetta tal“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“

Útlendingastofnun kannast ekki við verklagið sem Hlédís vísar til – „Kerfið vill bara dýrustu alþjóðlegu sveitarómagana“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“

Sakfelldur fyrir ofbeldi gegn 13 ára dreng eftir dyraat – „Ég fór út og tók í hnakkadrambið á honum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“

Ólafur hvetur lögregluna til að hafa sig hæga – „Koma okkur aftur til ársins 1969“