

Arion banki og Kvika munu ekki sameinast. Þetta var tilkynnt nú fyrir skemmstu.
Samrunaáformin voru kynnt í júlí í fyrra. Bankarnir tveir tilkynntu svo á Þorláksmessu að þeir hygðust hefja endurkaup á eigin bréfum með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins. Nam það 5 milljörðum króna hjá Arion og 1,8 milljörðum hjá Kviku. Áttu þau hlutföll að endurspegla skiptahlutföllin í samrunanum.
Nú er hins vegar tilkynnt að vegna afstöðu Samkepniseftirlits verði ekkert af samrunanum.
„Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna,“ segir í tilkynningunni.