fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Íslendingar og Pólverjar hjálpuðu Úkraínumönnum yfir þröskuldinn í máli gegn Rússum – „Mikilvægt skref“

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 08:00

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra Íslands og Andrii Sybhia utanríkisráðherra Úkraínu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslensk og pólsk stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi við málsókn Úkraínumanna gegn Rússum í sérstökum dómstól á vegum Evrópuráðsins. Þar með hefur Úkraína náð nægum fjölda meðmæla til þess að láta fara fram atkvæðagreiðslu um málið.

„Við erum þakklát félögum okkar á Íslandi og Póllandi fyrir að taka þetta mikilvæga skref,“ sagði Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, í færslu á samfélagsmiðlum. „Þetta eru tímamót. Með 17 meðmælendum erum við komin yfir hið lögformlega lágmark ríkja til að geta greitt atkvæði um málið.“

Standa með Úkraínu

Einnig var greint frá málinu á vef Stjórnarráðsins í gær. Það er að íslensk stjórnvöld hafi staðfest aðild sína að samningi um að koma á fót stjórnarnefnd sérstaks dómstóls vegna glæpa gegn frið í Úkraínu á vettvangi Evrópuráðsins.

„Ísland stendur sem fyrr dyggilega við bakið á úkraínsku þjóðinni og við erum staðráðin í því að standa vörð um alþjóðalög og tryggja að Rússar verði látnir bera ábyrgð á grimmdarverkum sínum í Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Alvarlegustu glæpirnir

Dómstólnum verður ætlað að ná til glæpa sem lögsaga Alþjóðlega sakamáladómstólsins nær ekki til. Komið hafi fram í ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna að mikilvægt væri að tryggja ábyrgðarskyldu Rússa vegna alvarlegustu glæpanna samkvæmt þjóðarétti á yfirráðasvæði Úkraínu með viðeigandi, sanngjörnum og óháðum rannsóknum.

Frá undirritun samkomulags um dómstólinn fyrir ári síðan. Mydn/Stjórnarráðið

Áður höfðu 15 ríki staðfest stuðning við hinn nýja dómstól. Það eru Noregur, Svíþjóð, Þýskaland, Bretland, Holland, Lúxemborg, Spánn, Portúgal, Slóvenía, Eistland, Lettland, Litháen, Króatía, Moldóva og Kosta Ríka.

Rússneskir herforingjar og stjórnmálamenn sæti ábyrgð

Þar sem tilteknum lágmarksfjölda hefur verið náð getur málið verið tekið fyrir á ráðherrafundi Evrópuráðsins í Chisinau, höfuðborg Moldóvu, dagana 14. til 15. maí næstkomandi.

Að sögn Sybiha þýðir þetta hins vegar ekki að Úkraína sé hætt að safna stuðningsaðilum að dómstólnum. Sóst verður eftir stuðningi bæði innan og utan Evrópu áfram. Hvatti hann lönd til þess að staðfesta stuðninginn til þess að tryggja að rússnesk hernaðaryfirvöld og pólitískir valdhafar verði látnir sæta ábyrgð á glæpum sínum.

En þetta snúist ekki aðeins um Rússa og þetta stríð. Þetta sé réttlætismál sem snúist um framtíðina og að alþjóðalög haldi.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Í gær

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon