
Lúkas Geir Ingvasson, einn þriggja aðalsakborninga í Gufunesmálinu, sem varðar andlát Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, 65 ára manns frá Þorlákshöfn sem lést í mars í fyrra í kjölfar mikilla misþyrminga, sýndi iðrun við aðalmeðferð málsins við Landsrétt í dag.
Lúkas var dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir hlutdeild sína í málinu, við Héraðsdóm Suðurlands í fyrra.
Meðal þess sem kom fram í vitnisburði Lúkasar Geirs var að Stefán Blackburn hafi lítið verið með Hjörleifi inni í iðnaðarbili á Kjalarnesi, þar sem Hjörleifi var haldið, en hann sjálfur og Matthías Björn Erlingsson (sem hlaut 14 fangelsi fyrir sinn þátt í málinu) hefðu aðallega verið með brotaþolanum.
Lúkas viðurkenndi að hafa misþyrmt Hjörleifi í iðnaðarbilinu, veitt honum um 10 þung högg, meðal annars sparkað í síðu hans.
Réttarhöldin í Landsrétti standa út vikuna og búast má við að dómur falli eftir rúmlega fjórar vikur.