fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Lyklar hverfa úr skápum í Ásgarðslaug: Fastagestir sakaðir um að taka þá með sér heim

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 15. apríl 2026 10:30

Skápakóngar virðast ráða ríkjum í Garðabænum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjörugar umræður fóru fram í íbúahópi Garðbæinga á Facebook í gær eftir að íbúi þar kvartaði undan því hversu marga lykla vantar í skápana í búningsklefa sundlaugarinnar í Ásgarði.

„Einn skápur af 8 með lykli og nothæfur á þessum vegg. Auk þess fleiri ónothæfir inn á milli. Þess mynd frá í gær. Þetta er búið að vera svona mjög lengi,“ sagði sá sem hóf umræðuna.

Margir lögðu orð í belg undir færslunni og ef marka má umræðuna virðist staðreyndin vera sú að fastagestir hafi eignað sér skápa og tekið lyklana með sér heim. Virðist ástandið ekki bara bundið við karlaklefann heldur einnig kvennaklefann samkvæmt umræðunni.

„Ég hef komið þarna daglega kl 06:30 í mörg ár. Þetta er misslæmt, hefur verið sérlega slæmt síðustu mánuði. Það sorglega er að eg hef þó nokkrum sinnum seð gesti ganga beint að ákveðnum skápum, fara í vasa sinn og taka upp lykillinn,” segir einn.

„Í sumum sundlaugum ganga fastagestir út með lykla til að tryggja sér ákveðna skápa. armbanda-system eins og í laugardalslaug myndi leysa þennan vanda, að því gefnu að allir lokaðir skápar væru opnaðir við lokun laugar,“ segir annar.

„Þeir sem taka lykla og eru staðnir að verki á að útiloka frá lauginni, ef svo er þá er þetta svo mikið tillitsleysi gagnvart öðrum sem nær engu tali. Laugin er sameign okkar ALLRA,“ segir málshefjandi umræðunnar í athugasemd.

Fleiri taka undir að einhvers konar viðurlög ættu að vera í gildi. „Það ætti að hengja upp nafnalista í anddyri yfir þá sem staðnir eru að verki,“ segir einn.

Svo virðist vera sem hópur fastagesta telji sig eiga ákveðna skápa. „Mætti snemma einn morguninn og var þá beðinn af einum þessum gömlu gaurum að færa mig því ég var að nota skápinn hans – sá þann skáp síðan sjaldan lausan á morgnanna,“ segir einn og annar tekur undir. „Akkúrat málið – sonur minn lenti í því sama.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Í gær

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon