fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Bubbi segir óttann notaðan til að stjórna Íslendingum – „Því miður eru til öfl sem telja hann góða fjárfestingu“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 12:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Bubbi Borthens segir að ótti sé í dag notaður sem stjórnunartæki. Eina leiðin til að sigrast á þessum ótta er að horfast í augu við hann, enda verstu ferðafélagi sem hægt sé að hugsa sér. Þetta kemur fram í færslu Bubba á Facebook en þar bendir hann á umræðuna um Evrópusambandið, óttastjórnun ríkra fyrirtækja og áróður gegn hinseginfræslu.

„Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér. Hann rænir mann rökhugsun, hann rænir mann orku, gerir mann dimman, útilokar rök, gerir mann árásargjarnan, svo eitthvað sé nefnt sem hann býður uppá. Ótti er líka notaður til að stjórna fólki.“

Nefnir tónlistarmaðurinn áróður sem undanfarið hefur komið frá stórefnuðum fyrirtækjm.

Til eru fyrirtæki, moldrík, sem nýta til dæmis óttann sem stjórnunartæki til að verja hagsmuni sína sem ganga þvert á hagsmuni þeirra sem þau eru að höfða til og leika sér með bakvið tjöldin.“

Eins víkur hann sér að umræðunni um hinsegin fræðslu í skólum, en sumir halda því fram að slíkt eigi ekkert erindi við börn. Umræðan hefur átt sér stað nokkuð lengi og birti Stjórnarráð Íslands meðal annars yfirlýsingu haustið 2023 til að koma því skýrt á framfæri að hinsegin fræðsla sé ekki kynfræðsla heldur fræðsla um fjölbreytileika, hugtök, virðingu og mikilvægi þess að vinna gegn fordómum. Kynfræðsla sé annað og snúist um að efla kynheilbrigði barna og er henni meðal annars ætlað að vera forvörn gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni. Bubbi nefnir eins mál kaþólska prestsins Jakobs Rolland sem lýsti því opinberlega að kirkja hans aðstoði fólk við að bæla niður samkynhneigð, en málið vakti gríðarlega athygli og var kallað eftir því að presturinn yrði kærður til lögreglu.

Bubbi skrifar:

„Hinsegin fræðsla í skólum fer í taugarnar á sumu fólki sem fer mikinn um lífshættuna sem börn eru sett í, eða þannig tala þau. Kaþólskur prestur talar á svipuðum nótum og bætir við að Ísland sé nánast trúlaust og gefur í skyn að það sé hægt að afhomma fólk. Þá væri kannski best að byrja á prestum kirkju hans sem hafa stundað skefjalaust barnaníð í skjóli kirkjunnar eins og hefur verið að koma uppá yfirborðið á undanförnum árum.“

Loks nefnir tónlistarmaðurinn umræðuna um Evrópusambandið en þar sé herjað á Íslendinga með óttann að vopni. Hvetur Bubbi fólk til a sjá í gegnum áróðurinn, horfast í augu við óttann og leyfa honum ekki að stjórna sér.

Aðrir nýta sér óttann í sambandi við ESB umræðuna. Þjóðin er í höftum krónunnar og okurvaxta og hér er heil kynslóð ungs fólks sem getur ekki eignast húsnæði en hér er herjað á okkur með óttann að vopni. Eina leiðin til að sigrast á óttanum er að stíga inní hann, þá verður maður frjáls og myrkrið hverfur. Horfast í augu við hann og hann lítur undan. Óttinn er versti ferðafélagi sem nokkur maður getur valið sér en því miður eru til öfl sem telja hann góða fjárfestingu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður