fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Stólpagrín gert að J.D. Vance – „Á sögulegri siglingu“

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 13. apríl 2026 19:30

Ekki græddi Viktor Orban Ungverjalandsforseti mikið á heimsókn Vance fyrir kosningarnar. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stólpagrín er nú gert að J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, sem virðist ver með ólukkuský yfir höfði sér. Allt sem hann snertir virðist verða að dufti.

Í breska blaðinu The Independent eru hrakfarir Vance raktar. En hann fór í einstaklega illa heppnaða ferð til Ungverjalands og Pakistan.

Vance heimsótti Viktor Orban, fráfarandi forseta Ungverjalands, til þess að lýsa stuðningi yfir endurkjöri hans. Fór það ekki betur en svo að Orban gjörtapaði kosningunum fyrir Peter Magyar, sem fékk aukinn meirihluta á þinginu og getur breytt stjórnarskránni.

Ekki gekk Vance betur í Pakistan þar sem reynt var að ná friðarsamkomulagi við klerkastjórnina í Íran, í stríði sem er að reynast algjört kviksyndi fyrir Bandaríkjamenn. Eftir innan við sólarhring fór Vance heim með ekkert samkomulag í höndunum.

„J.D. Vance er á sögulegri siglingu,“ sagði Ron Filipkowski, bandarískur lögmaður og samfélagsrýnir. Reifar hann fleiri misheppnuð ævintýri varaforsetans. „Hann berst fyrir AfD í Þýskalandi – þeir tapa. Hann bauð páfanum að koma á stóran viðburð Trumð – páfinn neitar. Stýrir friðarviðræðum við Íran – misheppnast algerlega. Berst fyrir Orban í Ungverjalandi – sem er grillaður.“

Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, gerði einnig grín að Vance.

„J.d. Vance sannar það að hann er léttvigtarmaður tvisvar sinnum á tveimur sólarhringum,“ sagði Newsom.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Í gær

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon