fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Ákærður fyrir fjárdrátt gagnvart fyrrverandi eiginkonu og tengdaföður

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 13. apríl 2026 14:30

Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann á fimmtugsaldri fyrir fjárdrátt gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni og tengdaföður sínum.

Maðurinn er annars vegar ákærður fyrir að hafa stofnað bankareikning í nafni fyrrverandi eiginkonu sinnar en hann hafði komist yfir rafræn skilríki hennar án vitundar hennar og vilja. Stofnaði hann til yfirdráttar á þessum reikningi og millfifærði á sjálfan sig rúmlega 1,1 milljón króna.

Hann er síðan ákærður fyrir að hafa haft fé út úr fyrrverandi tengdaföður sínum með því að taka út 377.000 krónur úr hraðbönkum eftir að hann hafði komist yfir greiðslukort tengdaföðurins og öryggisnúmer. Er hann sagður hafa notfært sér veikindi tengdaföðurins og yfirburðastöðu sína gagnvart honum.

Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness þann 13. maí en ákæran gegn manninum er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákæruna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Í gær

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon