

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem félagið sendi fjölmiðlum í morgun.
„Síðustu misseri hafa öll fangelsi landsins, lokuð öryggisfangelsi jafnt og opin fangelsi, verið gert að nýta alla lausa klefa og nýting plássa hefur verið nær stöðugt nálægt 100%. Löng biðröð hefur myndast um að nýta hvert laust klefapláss og ekki hefur verið unnt að verða við beiðnum lögreglu um að taka við síbrotamönnum og öðrum sem úrskurðaðir hafa verið í gæsluvarðhald, sem verður til þess að einstaklingum sé sleppt úr haldi lögreglu eða að þeir þurfi að dvelja langtímum í fangaklefum á lögreglustöðvum við ófullnægjandi aðstæður,“ segir meðal annars.
Bent er á að í fangelsinu á Hólmsheiði séu dæmi um að vista þurfi almenna fanga dögum eða vikum saman í einangrunarklefum yfir nætur þar sem ekki er pláss fyrir þá á almennum deildum.
„Yfir daginn eru slíkir fangar vistaðir á almennum deildum sem eru þegar fullskipaðar svo dæmi er um að 12 eða 14 manns séu samankomnir á deildum hugsaðar fyrir 8 fanga. Dæmi er um að fangar í báðum lokuðu fangelsunum á Hólmsheiði og Litla Hrauni séu vistaðir í klefum þar sem kallkerfi eru ónothæf eða biluð vegna þessa ástands.“
Stjórn Fangavarðafélags Íslands fullyrðir í yfirlýsingu sinni að fangelsiskerfið á Íslandi sé algjörlega komið að þolmörkum þegar kemur að getu starfsfólks til að viðhalda öryggi og eðlilegri þjónustu innan fangelsanna.
„Streita og álag er mikil hjá bæði fangavörðum og föngum og geta fangavarða til að bregðast við illdeilum og erjum meðal fangahópsins er verulega skert þegar ekkert svigrúm er til að flytja fanga milli staða. Telur stjórn FVFÍ að stjórnvöld fljóti sofandi að feigðarósi verði ekki brugðist við þessu ástandi með tafarlausum aðgerðum til að fjölga fangaplássum og bæta aðbúnað og mönnun í fangelsunum.“