fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Sauð upp úr fyrir utan Nettó Þönglabakka – Beitti útdraganlegri kylfu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 3. mars 2026 15:00

Mynd: Já.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður úr Kópavogi hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og vopnaburð á almannafæri vegna atviks sem átti sér stað föstudagskvöldið 11. júlí 2025, fyrir utan Nettó við Þönglabakka í Breiðholti.

Ákærði er sakaður um að hafa slegið brotaþola fyrirvaralaust hnefahöggi í andlitið þannig að hann féll til jarðar. Er brotaþoli stóð upp og dró fram hníf tók ákærði upp útdraganlega kylfu sem hann geymdi í buxnastrengnum, og sló henni í átt að höfði brotaþola sem bar fyrir sig vinstri handlegg þannig að kylfan hafnaði á handleggnum og brotnaði. Segir að brotaþoli hafi hlotið roða á vinstri vanga og sár innan á vinstri kinn.

Aðalmeðferð í málinu verður við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 5. mars. Þinghald er lokað af ókunnum ástæðum. Þar kann mögulega að ráða ungur aldur ákærða en aldur kemur ekki fram í ákæru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis

Lagði fram kæru eftir uppákomu við setningu Alþingis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður

Árásin á þorrablóti HK enn í rannsókn hjá lögreglu – Brotaþolinn varanlega skaddaður