fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þriggja barna móðirin sem fannst lifandi eftir að hafa verið saknað í 24 ár útskýrir hvers vegna hún lét sig hverfa

Pressan
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 15:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2001 yfirgaf þriggja barna móðirin Michele Hundley Smith, þá 38 ára gömul, heimili sitt og sagði fjölskyldunni að hún væri bara að fara út að kaupa jólagjafir. Hún skilaði sér aldrei heim aftur.

Lýst var eftir Smith en þegar hún fannst ekki þrátt fyrir víðtæka leit fóru margir að beina spjótum sínum að eiginmanni hennar. Orðið á götunni í Norður-Karólínu var að hann hefði komið henni fyrir kattanef. Þessar sögusagnir reyndust fjölskyldunni þungbærar og það var ekki fyrr en núna sem hægt var að kveða þær niður fyrir fullt og allt.

Sjá einnig: Þriggja barna móðir hvarf fyrir 24 árum – Mál hennar tók óvænta stefnu á dögunum

Lögregla hefur nú greint frá því að Smith sé fundin og sé við góða heilsu. Hún var í raun aldrei týnd heldur lét sig viljandi hverfa. Óskaði Smith eftir því að fjölskylda hennar yrði ekki upplýst um dvalarstað hennar en sú beiðni hefur vakið nokkra athygli. Hvers vegna ákvað Smith að yfirgefa eiginmann sinn og börn og hvers vegna vill hún ekki að þau viti hvar hún er?

„Mig langar hálfpartinn að hlaupa út og öskra: „Hún er á lífi, hún er á lífi,“ sagði frænka hennar, Barbara Byrd, við WFMYNews2 eftir að fréttir bárust af því að Smith væri á lífi.

Samkvæmt fjölmiðlum hefur Smith nú útskýrt hvers vegna hún lét sig hverfa. Það mun vera vegna viðvarandi átaka á heimilinu.

„Ég vil taka það fram að það voru engar ásakanir um saknæma háttsemi í tengslum við hvarf hennar en að sögn Smith mun hún hafa farið vegna viðvarandi heimilisvandamála á þeim tíma,“ sagði fógetinn í Rockingham-sýslu og bætti við að Smith hefði ekki útskýrt brottför sína nánar.

Árið 2001 voru börn hennar 19, 14 og 8 ára. Miðjudóttirin Amanda hafði aldrei gefið upp vonina um að finna móður sína. Árið 2018 stofnaði hún sérstaka Facebook-síðu þar sem hún óskaði eftir ábendingum sem gætu gagnast við leitina. Árið 2020 ræddi Amanda um málið við Dateline þar sem hún sagði að lengi hafi margir trúað því að Smith hefði verið rænt enda hefði hún aldrei yfirgefið börn sín, faðir Amöndu hafði þó aðra kenningu.

„Hann telur að hún hafi bara yfirgefið hann og okkur þetta kvöld.“

Amanda segir nú að hún sé í skýjunum yfir að móðir hennar sé á lífi en á sama tíma finnur hún fyrir blendnum tilfinningum.

Eins og áður segir hefur Smith óskað eftir því að dvalarstað hennar verði haldið leyndum, þar með talið frá börnum hennar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Flugfélag hættir að fljúga til Bandaríkjanna vegna Trump

Flugfélag hættir að fljúga til Bandaríkjanna vegna Trump
Pressan
Í gær

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum

Það getur verið auðveldara að sofna ef maður er í sokkum
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín

Kona sökuð um að nema á brott þriggja ára stúlku sem hún sagði að væri týnd dóttir sín
Pressan
Fyrir 2 dögum

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína

Svona velur hundurinn „uppáhaldsmanneskjuna“ sína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega

Hjartalæknir segir að það geti helmingað líkurnar á hjartasjúkdómum að gera þetta daglega
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni