fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Segir eigendur vinsællar náttúruperlu skorta metnað og sakar þá um peningaplokk

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 10:00

Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kerið, gíghóll í Grímsnesi, er vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna landsins rómaður fyrir náttúrufegurð sína og jarðfræðilega sögu. Áður var aðgangur að náttúruperlunni enginn, en eftir að það komst í eigu einkaaðila varð breyting á. Kerfélagið, sem var í jafnri eigu Óskars Magnússonar, Ásgeirs Bolla Kristinssonar, Sigurðar Gísla Pálmasonar og Jóns Pálmasonar, átti Kerið í 23 ár og vann að uppbyggingu á svæðinu. Árið 2023 var allt hlutafé Kerfélagsins og þar með Kerið sjálft selt til Arctic Adventures.

Í tilkynningu um söluna var haft eftir Ásgeiri Baldurssyni, forstjóra Arctic Adventures: „Kerið er með merkilegustu náttúruperlum landsins. Við teljum að góðir möguleikar séu til staðar til frekari uppbyggingar við svæðið og jafnframt áframhaldandi náttúruverndar. Kerið er í alfaraleið og aðgengilegt til lengri eða skemmri skoðunarferða. Við fögnum því að hafa náð samningum um þessi kaup og hyggjumst vanda þar til uppbyggingar. Arctic Adventures á allt undir þegar kemur að náttúruvernd og því skiptir góð umgengni um náttúruna okkur gríðarlega miklu máli.“

Eitthvað skortir þó upp á uppbygginguna að mati Börks Hrólfssonar rútubílstjóra og stjórnanda Facebook-hópsins Ferðaþjónusta á Íslandi allt sem er tengt ferðaþjónustu. Í færslu í gær skrifar Börkur:

„Enginn metnaður ! Bara fá peninga frá fólki ! Ekki flaggað. Mig minnir að það sé skylda að flagga, sé flaggstöng.

Og salernin yfirfull og lokuð. En engin tilkynning nema smá miði, sem fáir taka eftir á rukkunarkofanum. Og fólk búið að slaka á bremsunum.  Og veitinga vagninum lokað kl. 16:30 !Er ekki Arctic adventurs orðnir eigendur að þessu?

Mynd: Facebook
Mynd: Facebook

„Greinilega mikill metnaður um skýra upplýsingagjöf…“, segir einn í athugasemd og á þar við miðann um að salernin séu lokuð. Miða sem er eingöngu á ensku og því gerir eigandinn ekki ráð fyrir að Íslendingar hafi áhuga á að skoða náttúruperluna.

700 krónur kostar að skoða Kerið. Á myndunum sést að allavega einn starfsmaður er við vinnu í greiðsluskúrnum. Þegar spurt er fyrir hvað 700 kr. eru svarar Börkur: „Aðgang að svæðinu og wc.“

Eigendur Kersins harma atvikið eftir samtal við DV, sjá einnig: Svara gagnrýni vegna Kersins – „Atvik sem var afar óheppilegt og leiðinlegt og við biðjumst afsökunar á því“

Mynd: Facebook

Hvað varðar notkun íslenska fánans þá ber almenningi engin skylda til að flagga honum. Í forsetaúrskurði frá 1991 nr. 5 23. janúar kemur fram að draga skuli fána á stöng á húsum opinberra stofnana eftirgreinda daga:

  • Fæðingardag forseta Íslands (11. október)
  • Nýársdag
  • Föstudaginn langa
  • Páskadag
  • Sumardaginn fyrsta
  • 1. maí
  • Hvítasunnudag
  • Sjómannadaginn
  • 17. júní
  • 1. desember
  • Jóladag
  • 16. nóvember, fæðingardag Jónasar Hallgrímssonar.

Alla ofangreinda daga skal draga fána að hún, nema föstudaginn langa, þá í hálfa stöng. Fáninn má vera uppi frá sjö að morgni til sólarlags, en aldrei lengur en til miðnættis.

Æskilegt er að almenningur dragi fána á stöng á fánadögum, þá daga sem ríkisfáninn er hafður uppi á opinberum byggingum. Fánann má nota við öll hátíðleg tækifæri, jafnt þau sem tengjast einkalífi sem önnur eða á sorgarstundum, þá dreginn í hálfa stöng.

Reglur um notkun fánans má finna hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”